145. löggjafarþing — 18. fundur,  8. okt. 2015.

verslun með áfengi og tóbak o.fl.

13. mál
[15:39]
Horfa

Elsa Lára Arnardóttir (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Maður þarf vissulega líka að hugsa um landsbyggðina í þessum málum og þarna vega auðvitað bæði neytendasjónarmið og lýðheilsusjónarmið. Ég komst bara ekki inn í neytendasjónarmiðin af því að tíminn flaug áfram og var allt í einu bara búinn þegar ég ætlaði að fara inn á þann flokk. Við horfðum víða á landsbyggðinni á góðar vínbúðir eða ÁTVR-búðir eða hvað sem við köllum þær, með mikið úrval í sérverslunum með ákveðna stefnu, búðir sem hafa sterka samfélagslega ábyrgð í stefnu sinni — ég skildi ekki alveg nákvæmlega spurningu hv. þingmanns. Ég verð bara að segja, vill hv. þingmaður ekki endurtaka hana? Ég ætla ekki að reyna að redda mér út úr þessu.