145. löggjafarþing — 18. fundur,  8. okt. 2015.

verslun með áfengi og tóbak o.fl.

13. mál
[17:14]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Jú, ég er eindregið þeirrar skoðunar að færsla áfengis til matvöruverslana muni hækka verð á allri matvöru. Það er margt sem veldur því, m.a. það að þá þarf að ráða inn í verslanirnar eldra fólk en er oft að vinna í verslunum núna. Það fer heldur ekki hjá því ef útsölustöðum fjölgar úr 39 upp í kannski 200. Í dag er allt það húsnæði Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins sem áfengi er selt í 12 þús. fermetrar. Til samanburðar er Hagkaupsverslunin í Smáralind 10 þús. fermetrar. Menn sjá bara í hendi sér að ef við segjum að það verði línuleg aukning í fermetrunum muni þeim fjölga um líklega 30 þúsund. Þó að þetta húsnæði sé til geri ég ekki ráð fyrir að það verði látið undir áfengi fyrir ekki neitt. Ég geri ráð fyrir að leiga komi til þannig að vitaskuld mun þetta hækka vöruverð í landinu.