verslun með áfengi og tóbak o.fl.
Virðulegi forseti. Ég held að hv. þingmaður þjáist af ákveðinni oftrú gagnvart því hvernig ríkið hefur vit á því að stjórna menningu. Ég held nefnilega að ríkið og við hér á Alþingi höfum afskaplega lítið vit á því nákvæmlega hvaða áhrif aðgerðir okkar hafa almennt. Samfélag er ofboðslega flókið fyrirbæri. Ég held miklu frekar að jákvæð þróun í vínmenningunni sé til komin vegna þess að fólk má meira, það má fá sé bjór og drekka hann að kvöldi til inni á börum o.s.frv. Það er komin meiri menning í það, menning frá almenningi, ekki fyrirskipanir héðan.
Ég vek bara athygli á því að þessi þróun á sér stað samfara því að útsölustaðir margfaldast og sýnileikinn er meiri. Ég verð að segja að ég kaupi áfengi af og til og ég kannast ekki við að fá einhverjar sérstakar viðvaranir þegar ég geng inn í vínbúð. Þetta er bara búð. Vissulega gefur hún út bæklinga og svoleiðis en ég held ekki að það sé ástæðan fyrir bættri vínmenningu. Ég held að bætt vínmenning sé vegna þess að samfélagið sjálft hefur fengið tækifæri til þess að þroskast og þróast á eigin spýtur. Það er meðal annars þess vegna sem mér þykir svo vænt um frelsið.