145. löggjafarþing — 18. fundur,  8. okt. 2015.

verslun með áfengi og tóbak o.fl.

13. mál
[19:04]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Frelsið, bæði í formi lýðræðis og einstaklingsfrelsis, snýst um sjálfsákvörðunarréttinn. Ég aðhyllist hann í þessu máli eins og öðrum. Þegar kemur að stefnu okkar í vímuefnum þá vitum við mætavel að við erum ósammála meiri hluta þjóðarinnar en þá er það vegna þess að við lítum svo á að sjálfsákvörðunarréttur hvers og eins sé ríkari réttur en það hvað þjóðinni finnst um að það eigi að refsa neytendum, sem dæmi, þegar kemur að ólöglegum vímuefnum.

Þetta mál er ekki afgerandi vegna þess að það er ekki bannað að nota vímuefni eða nota áfengi, það er ekki bannað. Þannig að þetta lítur öðruvísi út. Mér finnst þetta ágætlega fallið til þess að fara í þjóðaratkvæðagreiðslu. Ég er hins vegar ósammála því að maður eigi beinlínis að stjórna samkvæmt skoðanakönnunum. Við gerðum þessar skoðanakannanir hvað varðar frumvörp vegna þess að það er flóknari spurning og maður veit ekki hvernig maður mundi koma því í þjóðaratkvæðagreiðslu til að byrja með. Þar er líka munur á.

Lýðheilsa er ekki sjálfkrafa það sama og fjárútlát til heilbrigðiskerfisins. Ég er sammála því að við eigum að auka fjárútlát til heilbrigðiskerfisins, en við borgum fyrir heilbrigðiskerfið með peningum, ekki með því að takmarka frelsi.