145. löggjafarþing — 19. fundur,  13. okt. 2015.

beiðni um sérstaka umræðu.

[13:32]
Horfa

Árni Páll Árnason (Sf):

Virðulegi forseti. Ég vil vekja athygli á því hér nú og óska eftir upplýsingum frá forseta um hvað líði afgreiðslu á beiðni um sérstaka umræðu frá hv. þm. Sigríði Ingibjörgu Ingadóttur til forsætisráðherra um verðtryggingu. Beiðni um þessa umræðu hefur legið hér fyrir missirum saman og forsætisráðherra hefur ekki sinnt þeirri skyldu sinni, samkvæmt stjórnarskrá og þingsköpum, að eiga orðastað við þingmanninn um þetta mál. Ég vil þess vegna ítreka mótmæli okkar við því að forsætisráðherra sé látinn komast upp með að sinna ekki starfsskyldum sínum hér gagnvart þinginu. Þetta setur mjög slæmt fordæmi og teflir í tvísýnu eftirlitshlutverki þingsins með framkvæmdarvaldinu ef forsætisráðherra á að komast upp með að virða þingmenn að vettugi þegar lögð er fram skýrt afmörkuð beiðni með málefnalegum hætti um efnislega umræðu um mál sem í ofanálag er mál sem hæstv. forsætisráðherra hefur nú talið sem sitt helsta baráttumál í stjórnmálum.