145. löggjafarþing — 19. fundur,  13. okt. 2015.

störf nefndar um endurskoðun stjórnarskrárinnar.

[13:57]
Horfa

Birgitta Jónsdóttir (P):

Forseti. Sá sem skipar í nefndina hlýtur að vita hvernig verkferlið á að vera. Ég er bara alveg gáttuð á þessu. Það er alveg ljóst til dæmis í þingmannanefndinni sem er að vinna að lögum um málefni útlendinga að við vitum nákvæmlega hvernig verkferlið á að vera, hæstv. forsætisráðherra. Þannig að ég óska eftir því að hæstv. forsætisráðherra í það minnsta útskýri fyrir þinginu hvernig verklagið á að vera í þeirri nefnd sem hæstv. forsætisráðherra skipaði sjálfur. Það er ekki flókið. Ég útskýrði það mjög vel áðan að ef ráðherra skipar nefnd til þess að vinna að málefnum er lúta að vilja forsætisráðherra þá hlýtur forsætisráðherra, því að þetta er ekki þingnefnd, þetta er nefnd með alls konar fólki, að vita hvernig verkferlið á að vera í þessu áður en það fer fyrir þingið.