145. löggjafarþing — 19. fundur,  13. okt. 2015.

störf nefndar um endurskoðun stjórnarskrárinnar.

[13:58]
Horfa

forsætisráðherra (Sigmundur Davíð Gunnlaugsson) (F):

Virðulegur forseti. Þetta var nú allt býsna skýrt, kemur fram í skipunarbréfi (Gripið fram í.) og er afleiðing af samráði flokka hér við lok (Gripið fram í.) síðasta þings fyrir kosningar. (Gripið fram í.)

(Forseti (ÞorS): Forsætisráðherra hefur orðið.)

Virðulegur forseti. Nú vantar okkur hv. þm. Össur Skarphéðinsson til að greina hvað er að koma upp á hér í samstarfi flokkanna, hvaða leik Píratar eru að spila í stjórnarskrármálinu, því að hér eru þeir að því er virðist að leggja drög að einhvers konar U-beygju í samstarfi um stjórnarskrármálið, samstarfi sem var komið á við lok síðasta þings. En það verður tíminn að leiða í ljós hvert þingflokkur Pírata ætlar með þessu.