dýravelferð.
Virðulegi forseti. Hér voru höfð uppi býsna stór orð og í mörgum tilvikum því miður ranglega farið með. Fyrirspyrjandi óskaði eftir viðbrögðum ráðherra við upplýsingum um illa meðferð á dýrum og ég get fullyrt það, bæði sem ráðherra og menntaður dýralæknir, að ég mun alltaf harma slæma meðferð á dýrum og slíkt á ekki að eiga sér stað. Við þurfum þó að virða þau lög og reglur sem ber að fara eftir í þessu sambandi og við búum við ný lög hvað þetta varðar. Það eru lög nr. 55/2013, um velferð dýra, og síðan þær aðbúnaðarreglugerðir sem settar hafa verið á grundvelli þeirra laga. Ég kem betur að því síðar. Ég vil einnig nefna að það verður auðvitað að gera þá kröfu til þeirra sem halda dýr að viðkomandi geri það með forsvaranlegum hætti sem ég held að langsamlega flestir geri.
Fyrirspyrjandi spyr einnig hvort ráðherra muni beita sér fyrir því hvort upplýst verði um hvaða svínabú sé að ræða. Málið er á forræði Matvælastofnunar samkvæmt lögum. Hún starfar samkvæmt upplýsingalögum og þarf einnig að fara eftir persónuverndarlögum. Ráðherra á því ekki hægt um vik að grípa inn í þann feril og getur ekki upplýst um það á hvaða svínabúum umræddar myndir voru teknar, enda hefur ráðherra ekki þær upplýsingar í sínum fórum. Vilji menn breyta því þarf að breyta lögum um upplýsingalöggjöf og persónuvernd.
Matvælastofnun hefur bent á að málefni er varði velferð dýra séu undanþegin upplýsingarétti þar sem stofnunin líti svo á að þau varði einkahagsmuni einstaklinga samkvæmt 9. gr. upplýsingalaga.
Einnig er spurt hvort ráðherra telji að fullnægjandi sé að beita sektum í stað kæru þegar um svona brot sé að ræða. Lög um velferð dýra veita Matvælastofnun þó nokkur úrræði ef upp koma brot er varða velferð dýra. Samkvæmt lögunum getur stofnunin stöðvað starfsemi, beitt dagsektum, svipt umráðamenn vörslu dýrs, bannað dýrahald, beitt stjórnvaldssektum og kært málið til lögreglu. Fjallað er um refsiábyrgð umráðamanns í 45. gr. laganna þar sem tilgreind er sú háttsemi sem Matvælastofnun getur kært til lögreglu, m.a. ef umráðamaður vanrækir skyldur sínar, til að tryggja dýrum aðbúnað samkvæmt lögum og settum reglugerðum. Stofnunin hefur því skýrar heimildir til að bregðast við brotum samkvæmt þessum lögum. Vegna umfjöllunar um svínabúin þá hefur eitt svínabú sætt þvingunaraðgerðum og ég fékk þær upplýsingar í morgun að þeim er lokið með því að gyltur á því býli eru komnar í lausagöngu en eru ekki á básum. Þessar aðgerðir Matvælastofnunar virka með öðrum orðum.
Það fer eftir eðli brotanna til hvaða úrræða er æskilegt að stofnunin grípi en hafa ber í huga að stofnunin er einnig bundin af meðalhófi í þessum málum eins og öðrum á stjórnvaldssviðinu.
Það var einnig spurt um þéttleika dýra í alifuglabúum. Það er áhugavert þar sem fyrirspyrjandi hefur verið dálítið áhugasamur um Evrópusambandið að reglugerð um velferð alifugla í Evrópusambandinu gerir ráð fyrir að þar megi vera 42 kíló á fermetra. Í þeirri reglugerð sem hér er sett á Íslandi er heimild til framleiðslu kjúklinga með hámarksþéttleika 39 kíló, þ.e. minna en er algengt viðmið í Evrópusambandinu.
Heimildin fellur þó niður ef í ljós kemur við eftirlit Matvælastofnunar að skilyrði um dritbruna séu ekki uppfyllt og færast þá framleiðendur niður í 33 kíló sem er harðasta þéttleikareglugerð hér á norðurhveli. Eftirliti á öllum kjúklingabúum samkvæmt ákvæðinu skal vera lokið 28. janúar 2016.
Í reglugerðinni, sem upphaflega var sett, var gert ráð fyrir að væru 42 kíló eins og er í Evrópusambandinu en við vinnslu reglugerðarinnar bárust athugasemdir um að meðal annars í Noregi og Svíþjóð — Noregi sem er ekki Evrópusambandsland en Svíþjóð sem er Evrópusambandsland — sé hámarksþéttleiki 36 kíló á fermetra.
Eldri reglugerð gerði ráð fyrir miklu meiri þéttleika og er þetta því umtalsverð framför frá því sem áður var en allt önnur viðmiðun sem þá var. Þá var miðað við 19 kjúklinga á hvern fermetra en kjúklingar hafa vaxið á þessum tíma. Það verður að hafa í huga að kjúklingum er venjulega slátrað 32–36 daga gömlum.
Einnig var spurt hver væri staðan við vinnslu reglugerðanna. Það er rétt að geta þess að frá 16. október 2014 til 22. janúar 2015 hafa verið birtar reglugerðir um velferð hrossa, nautgripa, svína, minka og alifugla. Enn stendur yfir vinna í ráðuneytinu vegna reglugerðar um velferð gæludýra og stefnt er að því að vinnu við reglugerðina ljúki nú í nóvember. Þá er í endurskoðun reglugerð sem fjallar um flutning á búfé.
Vissulega hafa miklar framfarir orðið í kjölfarið á lagasetningunni og þeim reglugerðum sem settar hafa verið. Ég get því miður ekki svarað spurningunni, vegna tímaskorts, varðandi nautgripina. Ég skal gera það á eftir í lokaorðum mínum.