145. löggjafarþing — 20. fundur,  14. okt. 2015.

störf þingsins.

[15:24]
Horfa

Ásmundur Friðriksson (S):

Virðulegi forseti. Það ríkir mikil reiði í samfélaginu yfir mismunun sem veður hér uppi. Við höfum horft upp á yfirstjórn Arion banka færa fámennum hópi, klíku viðskiptavina, hundruð milljóna á silfurfati.

Áður en ég settist á þing þá tók ég aldrei undir umræðu um að það væri spilling í þessum sal eða meðal þingmanna eða ráðherra og eftir að hafa setið hér í rúm tvö ár, þá er ég enn þá sannfærður um að spillingin í þjóðfélaginu á ekki rætur í þinginu og það er mikilvægt að halda því til haga. En spillingin virðist eiga rætur sínar í bönkunum og þar virðist mismunun eiga sér stað nær daglega. Það er óþolandi að slík mismunun skuli ganga í okkar litla samfélagi. Það er algerlega óþolandi. Það er fnykur í loftinu. Það er svona bankaskítafýla í loftinu sem er algerlega óþolandi. Ég hef algeran viðbjóð á allri þeirri mismunun sem á sér hérna stað. Fangelsi landsins eru hálffull af bankamönnum nú þegar og það er örugglega pláss fyrir fleiri ef þeir ætla að halda áfram að haga sér svona í þessu þjóðfélagi. Fólkið fordæmir þetta og ég geri það líka.


Efnisorð er vísa í ræðuna