störf þingsins.
Hæstv. forseti. Ég hafði þegar kvatt mér hljóðs undir þessum lið, störf þingsins, með ræðu en brást síðan við og svaraði hv. þm. Sigríði Ingibjörgu Ingadóttur varðandi verðtrygginguna. Ég hef hugsað mér að halda áfram að ræða það mál, en þykir miður að hv. þingmaður er ekki í salnum, en taldi mig svo sem hafa svarað nánast að fullu leyti þeim þremur spurningum sem hún lagði fyrir, en afmarkaði þó ekki svarið við þær.
Aðeins efnislega um verðtrygginguna. Hún hefur verið á dagskrá stjórnvalda, þ.e. að kljást við það að breyta þessu kerfi, nánast alla tíð frá því að hún var tekin upp. Það hefur oftast verið í augljósum takti við hagsveiflur. Gjarnan dofnar umræðan þegar verðstöðugleiki ríkir og kaupmáttur eykst, fólk hefur vinnu og getur almennt ráðið við þá greiðslubyrði sem það tekst á hendur, en þegar þensla myndast eins og við erum að upplifa núna og verðbólgan fer af stað þá skapast órói. Síðan þegar hallar undan fæti og niðursveifla fylgir góðæri kemur berlega í ljós að ábyrgðin gagnvart hagsveiflunni, öllu því sem breytist, liggur alfarið á lántakanum.
Nú hefur verið deilt um þetta fyrirkomulag lengi vel. Það eru margir sem vilja verja, við getum kallað það það, þetta kerfi. Almenningur sem þarf að kljást við greiðslubyrðina af þessu kerfi vill afnema það. Það er alveg skýrt. Ríkisstjórnin hefur hingað til verið með málið í ferli frá því að þingsályktunartillagan var samþykkt eins og ég fór yfir áðan.
Hv. þingmaður spurði mig hvort ég hefði trú á því að þetta tækist. Tíminn er vissulega knappur, en það kemur skýrt fram í svari hæstv. forsætisráðherra við fyrirspurn hv. þingmanns hvar málið er statt. Það eru 40 ára lánin, (Forseti hringir.) þeim þarf að breyta í 25 ár, það er á borði hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra. Verðtryggingarvaktin (Forseti hringir.) hefur þegar verið sett af stað og fullt afnám (Forseti hringir.) er fyrirhugað 2016. Tíminn er knappur, en ég trúi því að þetta sé hægt.