verslun með áfengi og tóbak o.fl.
Hæstv. forseti. Við ræðum frumvarp til laga um breytingu á lögum um verslun með áfengi og tóbak, lögum um aukatekjur ríkissjóðs, áfengislögum og lögum um gjald af áfengi og tóbaki, með síðari breytingum. Þetta snýr að smásölu áfengis.
Hv. þingmaður og 1. flutningsmaður málsins, Vilhjálmur Árnason, fór í framsögu sinni vel yfir einstakar greinar þessa frumvarps og tilurð þeirra breytinga sem nauðsynlegt er að gera á lögum sem snúa að sölu áfengis og tóbaks. Ég ætla ekki í ræðu minni að fjölyrða mikið um það eða þær einstöku breytingar. Hér er lagt upp með að gera litlar breytingar á lagaumhverfi áfengis- og tóbakssölu, þó þannig að markmið þess nái fram að ganga, en lagt er til að einkaleyfi Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins, ÁTVR, á smásölu áfengis verði aflagt og smásala verði að ákveðnu marki frjáls eða frjáls með ákveðnum skilyrðum, eftir því hvernig við orðum það.
Eins og fram kemur í greinargerð með frumvarpinu var frumvarpið lagt fram á síðasta löggjafarþingi, því 144., og fékk þá mikla umfjöllun og líflega umræðu, enda ekki um neina venjulega vöru að ræða og síður en svo að það blasi við að einfalt sé að fullyrða umræðulaust og einhliða um þær breytingar á sölufyrirkomulagi sem lagðar eru til. Þá fékk málið mikla umfjöllun og fjölda umsagna í hv. allsherjar- og menntamálanefnd en alls bárust 46 umsagnir þar sem 23 umsagnir voru mótfallnar, ef við getum sagt sem svo, mestmegnis á grundvelli lýðheilsu. 17 voru jákvæðar gagnvart frumvarpinu og þeim breytingum sem það boðar, mestmegnis á grundvelli viðskiptasjónarmiða og frelsis. Sex aðilar gáfu umsögn en tóku ekki afstöðu í umsögn sinni.
Að mörgu er að hyggja eins og umræðan um þetta mál ber glögglega með sér. Til er gríðarlegt magn upplýsinga og rannsókna um bæði þá vöru sem um ræðir og þann skaða sem ofneysla getur sannarlega valdið. Það fer ekkert á milli mála.
Umræðan hér hefur hins vegar kallað fram í huga mínum kenningu sem Herbert Simon, bandarískur hagfræðingur með meiru, setti fram og kallaði takmarkandi skynsemi, með leyfi forseta, „bounded rationality“. Í þeirri kenningu skorar hann í raun og veru á hólm það klassíska líkan sem við teljum okkur fara eftir, þ.e. að við söfnum saman öllum tiltækum upplýsingum á takmörkuðum tíma og vegum og metum síðan alla kosti út frá þeim og náum svo sem hagkvæmastri niðurstöðu. Samkvæmt þessari kenningu Herberts Simons er það aldrei eða sjaldnast svo, heldur endum við uppi með ásættanlega niðurstöðu sem einangrast við takmarkaðan þátt viðfangsefnisins, vegna þess að það er flókið að draga saman allar upplýsingar og stilla af og ná fram hagkvæmustu niðurstöðunni, og hver er hún svo sem? Af því einkennist þessi umræða. Hún litast líka, og það kemur fram í þessari kenningasmíð, af tilfinningum og það er eðlilegt. Hún litast jafnframt af því mannlega eðli sem er breytilegt gildismat.
Í umræðunni eru margar breytur. Það er mikið magn upplýsinga og það er tiltölulega flókið að bera saman allar þessar upplýsingar. Svo er það hitt að mikið af upplýsingunum byggja á afmörkuðum rannsóknum og annað hreinlega á tilfinningalegum rökum eins og ég kom inn á.
Hér hafa til að mynda andstæðingar frumvarpsins beitt lýðheilsurökum. En eins og fram kemur í áliti meiri hluta hv. efnahags- og viðskiptanefndar síðast þegar málið var til umfjöllunar þá þarf lýðheilsa alls ekki að vera andstæða viðskiptafrelsis né er hægt að halda því fram að flutningsmenn þessa frumvarps séu andstæðingar lýðheilsu. Það verður að segjast að þessi vinkill hefur hingað til einkennt umræðuna hjá þeim sem mæla gegn frumvarpinu og samhliða einkennist hún af vantrú á þekkingu og ákvörðunargetu fólks almennt, vantrú á verslun í landinu. Þá er oft og tíðum algerlega skautað fram hjá öðrum þáttum sem skipta máli þegar kemur að opinberri stefnumótun í áfengismálum, t.d. þeirri staðreynd sem lesa má m.a. úr skýrslum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar og víðar, fleiri gögn sýna það, að verð og skattlagning hefur tvöfalt meiri áhrif á neyslu en aðgengi.
Samkvæmt því frumvarpi sem við ræðum er heldur ekki verið að falla frá öllum þeim takmörkunum á aðgengi sem hægt er að beita, til að mynda opnunartíma og aldurstakmörkunum, alls ekki. Stóra breytingin er að sá aðili sem afhendir vöruna er á launaskrá hjá einkaaðila ef frumvarpið verður að lögum, versluninni í landinu, en ekki á launaskrá hjá skattgreiðendum, versluninni í landinu sem við treystum til að selja okkur sykraða vöru, feitar vörur, tóbak og annan varning sem ekki er endilega æskilegur út frá lýðheilsusjónarmiðum.
Alþjóðaheilbrigðismálastofnun segir að þrír helstu ógnvaldar lýðheilsu séu offita, tóbak og áfengi og nokkurn veginn í þessari röð. Við eigum að taka það alvarlega. En eigum við virkilega að fórna þeim möguleika að hagræða og spara í ríkisrekstri vegna þess að við treystum ekki versluninni til að fara að lögum eða neytandanum til að taka ábyrgar ákvarðanir? Áfengi var lengi vel bannað hér á landi á svipuðum forsendum og bjór var lengi vel bannaður vegna þess að einhverjir trúðu því að drykkja á Íslandi mundi hefjast á vinnustöðum og mjöðurinn kæmi í stórauknum mæli í staðinn fyrir kaffi. Það er alger vantrú á ákvarðanir einstaklingsins almennt.
Ég hef ekki orðið var við það í umræðunni að andstæðingar frumvarpsins hafi minnst einu orði á tengsl tekna, kaupmáttar og neyslu þrátt fyrir að það sé gríðarlega mikill áhrifaþáttur og beint orsakasamhengi þar á milli, eða á mismunandi menningu á milli þjóða í því samhengi. Nei, virðulegi forseti, ekki einu orði. Keppst er við að vitna í hálfrar aldar gamlar rannsóknir á afnámi einkasölu og neyslu annarra þjóða, t.d. í Finnlandi frá 1969. Það er algerlega gleymt í þeirri umræðu hver hagsveiflan er og þær breytingar sem hafa orðið á velmegun á áratugunum þarna á eftir og sú staðreynd að þar hefur verðþróun verið til lækkunar á áfengi og áfengisgjöld verið lækkuð til samræmis við aðrar þjóðir Evrópusambandsins. Nei, síbylja, aukið aðgengi og aukin neysla skal það vera hér og hvar óháð öllu öðru. Staðreyndin er svo sú að alls kyns blanda er til af sölufyrirkomulagi, einokunarfyrirkomulagi eins og við sjáum hér á landi og frjálsri sölu, og þar á milli ýmiss konar sérleyfi og jafnvel mismunandi á milli tegunda, eftir því hvort við erum að tala um sterka drykki eða veikari.
Ég held að við eigum að geta rætt þetta mál af meiri yfirvegun þar sem markmiðið er að beita öllum tiltækum ráðum til eflingar lýðheilsu og skaðaminnkunar af völdum áfengisneyslu á sama tíma og við förum vel með skattfé og hlúum að viðskiptaumhverfinu. Þetta frumvarp getur sannarlega verið liður í því. Við getum skerpt á opinberri áfengisstefnu og beitt öðrum tiltækum og fjölmörgum ráðum í því efni. Við getum aukið framleiðni í verslun á bæði fermetra og vinnuafl. Við getum tekið tillit til byggðasjónarmiða þar sem þetta frumvarp er til þess fallið að styrkja minni verslanir á landsbyggðinni. Við getum mælt minni brugghús víða um land sem geta nýtt sér þetta í þjónustu við ferðamenn og ekki síst getum við sparað skattfé, en sú krafa er gerð til okkar að forgangsraða, sýna ráðdeild og aga þegar kemur að ríkisútgjöldum.
Ég ætla að vitna í umsögn Samtaka skattgreiðenda. Þar segir:
„Engin haldbær rök hafa komið fram sem mæla gegn því að færa sölu áfengis frá ríkinu til einkaaðila enda er þeim treyst í dag fyrir sölu á nánast allri annarri neysluvöru […] Rekstur ÁTVR er kostnaðarsamur og af lestri ársreikninga má ætla að nánast ekkert sé að hafa upp úr sölu áfengis. Arður greiddur til ríkisins virðist að mestu koma af sölu tóbaks. Ríkinu gæfist því tækifæri til að leysa til sín eigið fé ÁTVR og lækka með því skuldir.“
Hér er áminning til okkar að skoða þetta mál og hvert mál og tækifæri til að fara vel með skattfé. Við eigum í það minnsta að reyna að ræða okkur áfram og skoða öll tækifæri sem felast í því breytta fyrirkomulagi sem boðað er í þessu frumvarpi. Í skýrslu Cleve Data, innsendum umsögnum og fræðilegum úttektum um málið er að finna athyglisverðar upplýsingar um viðskiptaleg sjónarmið, rekstrar- og sparnaðaráhrifin sem þetta frumvarp getur leitt af sér. Þar kemur meðal annars fram að óráðstafað eigið fé sem bundið er í rekstri ÁTVR sé tæpir 5 milljarðar. Það má gera ýmislegt fyrir þann pening en það er auðvitað leyst út í eitt skipti. Það má jafnframt leiða líkur að því að þess utan megi spara rúma 3 milljarða árlega.
Í ágætisumsögn sem Arnar Sigurðsson setur fram er að finna útreikning á því hver árlegur sparnaður gæti orðið. Það er unnið úr ársreikningi ÁTVR og er í samræmi við upplýsingar sem finna má víðar. Þar er sett fram með sannfærandi hætti sparnaður meðal annars í launum og launatengdum gjöldum og húsnæði og þar er talað um rúmlega 3 milljarða. Fyrsta árið, yrði þetta fyrirkomulag að veruleika, getur því sparnaður samkvæmt því samsvarað veiðigjöldunum á einu ári. Ég ætla ekki að fullyrða um það hér en af þeim upplýsingum og tölum að dæma getum við ekki skautað fram hjá þessu og ég nefni þetta dæmi til að setja hlutina í eitthvert samhengi. Andstæðingar þessa frumvarps hafa einhverjir, svo ég sé hógvær í þeim yfirlýsingum, haldið því fram að málið sé allt að því svo ómerkilegt að það eigi ekki heima á dagskrá virðulegs forseta.
En nánar að sölufyrirkomulagi og aðild ríkisins að slíkum viðskiptum. Það er auðvitað alltaf gild spurning á vettvangi stjórnmálanna hvort ríkið eigi að standa í verslunarrekstri almennt þar sem markaðurinn hefur áhrif og getu til að sinna þeim viðskiptum. Eðli þeirra gæða sem um ræðir skiptir að sjálfsögðu máli. Við velkjumst ekkert í vafa um mikilvægi þess að standa fyrir grunnþjónustu, heilbrigðisþjónustu, menntun, samgöngum og löggæslu og vissulega er áfengi ekki venjuleg vara og því alveg rök að mati margra að almenn viðmiðun um þátttöku ríkisins í verslunarrekstri eigi ekki við. Lýðheilsusjónarmið skipta miklu máli og sú skaðsemi sem getur hlotist af misnotkun vörunnar eða ofneyslu skiptir að sjálfsögðu máli, áhrif og afleiðingar ofneyslu sjúklinga á heilsu þeirra og félagslegar hliðar gagnvart einstaklingnum og fjölskyldu hans, aukið álag á heilbrigðis- og velferðarkerfið. Þess vegna er nauðsynlegt að við ræðum það hér og einnig af því að aukin krafa er á stjórnvöld, stjórnmálamenn, á okkur sem störfum hér á vettvangi löggjafans, að forgangsraða í rekstri ríkisins. Það þýðir meðal annars að markmið stakra mála vegast á og þá þarf að meta hvaða markmið vega þyngra til að ná sem hagkvæmastri niðurstöðu fyrir þjóðfélag og þegna, þannig að skattpeningar nýtist á sem skilvirkastan hátt. Þetta mál er í mínum huga þess eðlis.
Ég get sagt það jafnframt að þessi umræða ein og sér er góð. Hún dregur athyglina að því sem við erum að fást við. Hvert sem fyrirkomulagið verður á sölu og dreifingu er það viðvarandi verkefni að sinna lýðheilsu og vissulega er takmarkað aðgengi að áfengi eitt þeirra atriða. En það er ekkert í umræðunni sem hefur með óyggjandi hætti sýnt fram á að það eitt að breyta sölufyrirkomulaginu valdi þeirri kollsteypu sem stundum er gefin til kynna heldur fer það viðfangsefni aldrei frá okkur að stuðla að lýðheilsu og vinna að skaðaminnkun af völdum áfengisdrykkju.