verslun með áfengi og tóbak o.fl.
Virðulegur forseti. Hv. þingmaður útskýrði þetta alveg ágætlega. Þess vegna er mér fyrirmunað að skilja hvernig hægt er að fjalla um þetta mál með svo mikilli aðgreiningu, sem hún vill hafa uppi hér, á viðskiptafrelsi og einstaklingsfrelsi. Í viðskiptafrelsi felst auðvitað einstaklingsfrelsi. Frelsi einstaklinga til að eiga viðskipti, hvort sem það er til að kaupa — þá er ég auðvitað ekki að tala um að menn eigi einhvern rétt á því að kaupa af tilteknum aðilum, heldur rétt á því að velja um verslunarhætti, en ekki síður til að eiga í viðskiptum, selja áfengi. Það er því alveg útilokað annað en að í viðskiptafrelsi felist einstaklingsfrelsi. Um það snýst þetta mál. Mér finnst það í hæsta máta mikill orðhengilsháttur að ætla að afgreiða umræðu um frelsi í þessum málum með þeim hætti að vísa til þess að hér sé ekki um einstaklingsfrelsi að ræða heldur viðskiptafrelsi. Það er algjörlega (Forseti hringir.) fráleitur málatilbúnaður.