145. löggjafarþing — 21. fundur,  15. okt. 2015.

verslun með áfengi og tóbak o.fl.

13. mál
[15:02]
Horfa

Bjarkey Gunnarsdóttir (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Mér þykja þetta mjög áhugaverðar og góðar umræður, af því að hér hefur verið spurt hvort ræða þurfi þetta mál eitthvað nánar. Það er mjög þarft og gott að velta fyrir sér opnunartíma, fjölda veitingastaða og öðru slíku sem rætt hefur verið hér.

Varðandi unga fólkið okkar þá eru hlutirnir kannski öðruvísi í dag en áður var, því miður. Unga fólkið okkar er að blanda efnum saman en ekki eingöngu að drekka áfengi, það neytir margra annarra efna og við þurfum að glíma við afleiðingarnar af því í kerfinu.

Mig langar að velta því aðeins upp með þingmanninum þessu með aðgengi og vörumerkjavitund Íslendinga — mér skilst að hún sé ekki mjög sterk þegar kemur að léttum og sterkum vínum — og hvaða afleiðingu það hefur í för með sér fyrir hina ýmsu framleiðendur, litlu framleiðendurna meðal annars. Ég hef haft þá tilfinningu að stóru aðilarnir, Ölgerðin, Vífilfell eða hvað þeir nú heita, sem eru með ráðandi stöðu á markaðnum, hafi það forskot í dag að þrátt fyrir að lögunum yrði breytt í þessa veru þá mundu þeir ráða markaðnum áfram og gætu stýrt framleiðslunni til þessara stórverslana. Og þetta hefði nákvæmlega sömu áhrif hvað varðar stærstu matarkeðjurnar sem við þekkjum, Haga og einhverjar fleiri; þær mundu stýra verði og vöruúrvali. Í verslunum á landsbyggðinni, sem fá ekki einu sinni tilteknar matvörutegundir sem eru þó til sölu á stærri stöðum, yrði skammturinn allt annar en þar sem íbúarnir eru fleiri.