145. löggjafarþing — 21. fundur,  15. okt. 2015.

verslun með áfengi og tóbak o.fl.

13. mál
[15:39]
Horfa

Páll Valur Björnsson (Bf) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka þetta andsvar. Ef ég ætti að beita mér verulega í sambandi við áfengissölu mundi ég beita mér á annan hátt. Ég hef skýrt það mjög vel hvers vegna ég vil ekki að áfengi fari inn í matvöruverslanir. Það er bara vegna þess að ég tel að það muni auka neyslu gríðarlega og sérstaklega hjá viðkvæmasta hópnum. Það hefur verið sýnt fram á það. Ég sagði frá því áðan og vitnaði í David Nutt sem hélt mjög athyglisverðan fyrirlestur í Háskóla Íslands í fyrra þar sem hann fjallaði um þetta mál og þá fékk ég endanlega staðfestingu á því. Ég var ekkert á móti þessu hérna áður fyrr enda drakk ég eins og svín. Ég var ekkert á móti þessu. Síðan hefur maður í gegnum tíðina áttað sig á því að þetta er gríðarlega alvarlegt mál og hefur gríðarlega alvarlegar afleiðingar.

En ég segi út af sveitarfélögunum, að setja reglur um það hvernig þetta eigi að vera, eins og þú spyrð — ég veit að um allt land er þetta bara við hliðina á matvöruverslununum, þetta er ekki inni í þeim. Mitt aðalmottó er: Ekki inn í matvöruverslanir með áfengissölu.

(Forseti (ÞorS): Forseti beinir því til hv. þingmanns að ávarpa aðra þingmenn sem hv. þingmenn.)