verslun með áfengi og tóbak o.fl.
Herra forseti. Ég hef vara á mér gagnvart þessu frumvarpi út frá lýðheilsusjónarmiðum. Ég geri þá játningu fúslega gagnvart hv. þm. Sigríði Andersen að ég er tæknikrati. Ég horfi til þeirra og til ráða frá þeim sem hafa mér fremur vit á málum. Ég trúi því til dæmis og treysti að hæstv. heilbrigðisráðherra láti ekki frá sér fara fullyrðingar eða stefnur öðruvísi en að hann hafi hugsað þær til þrautar. Ég tek mark á því, ég verð bara að viðurkenna það, að þegar hæstv. ráðherra leggur fram stefnu þar sem hann segir að eftirfarandi sé hans stefna um vímuvarnir og fyrsta markmið, raunar yfirmarkmið hans sé að takmarka aðgang að áfengi út frá lýðheilsusjónarmiðum, tek ég mark á því.
Ræða hv. þingmanns sannfærði mig líka um það, alveg eins og ræða hv þm. Willum Þórs Þórssonar fyrr í dag, að þeir sem styðja þetta frumvarp af kappi og mættu kannski hafa meiri forsjá, eru líka haldnir nokkrum sjálfsefa, að því er virðist. Ræða hv. þingmanns gekk eiginlega út á það að halda því fram að frumvarpið væri lagt fram út frá á sjónarmiðum lýðheilsu. Það var erfitt að skilja annað hjá hv. þingmanni.
Hv. þingmaður er vitsmunavera og á auðvelt með að rökstyðja mál sitt. Þess vegna finnst mér hún kannski nokkuð dreissug þegar hún kemur hér og segist líka styðja þetta mál vegna þess að hún líti svo á að einstaklingurinn eigi að hafa frelsi til að velja. Varnagli hv. þingmanns er þessi: Ja, hann verður að standa undir ábyrgð.
Annar hv. þingmaður, Frosti Sigurjónsson, hefur sýnt fram á það með því að fara í gegnum rannsóknir að þetta frumvarp er líklegt til að leiða til þess að menn drekki mun meira magn af vínanda sem aftur muni leiða til þess að meira verði af alls konar sjúkdómum sem muni kosta samfélagið mikla peninga. Þá spyr ég hv. þingmann: Hvernig ætlar þá einstaklingurinn að standa undir (Forseti hringir.) þeirri ábyrgð þegar hann bakar öðrum skaða, t.d. fjárhagslegu tjóni, með háttsemi sinni?