145. löggjafarþing — 21. fundur,  15. okt. 2015.

verslun með áfengi og tóbak o.fl.

13. mál
[16:24]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Svo enginn þurfi nú að velkjast í vafa um það þá er þetta frumvarp einkum og sér í lagi lagt fram af frelsisást flutningsmanna og vegna þess að við teljum að sala á áfengi sé betur komin í höndum annarra en ríkisins. Ég er meðflutningsmaður að frumvarpinu og ég held að þetta hafi verið líka tilgangurinn í fyrra skiptið þegar það var lagt fram, en þá var ég ekki meðflutningsmaður. Við teljum að tími ríkisins í verslunarrekstri sé löngu liðinn, hafi hann nokkurn tíma verið. Ég dreg mjög í efa að ríkisrekstur eða ríkisverslunin hafi einhvern tíma átt rétt á sér.

Vísað er til heilbrigðissjónarmiða heilbrigðisráðherra eða ríkisstjórnar sem sett hefur sér það markmið að draga úr áfengisneyslu. Ég geri ekki neinar athugasemdir við að menn setji sér markmið um að draga úr áfengisneyslu. Ég er enginn talsmaður þess að hér drekki allir áfengi, hvort sem það er lítið eða mikið, ég hef bara enga skoðun á því hvort menn eigi að drekki áfengi eða ekki, og þá er ég að tala um fullorðna og sjálfráða einstaklinga. En frumvarpið tekur hins vegar vel undir það sjónarmið að einhvers konar takmörkun skuli vera við sölu áfengis. Það kemur sérstaklega fram í 22. gr. frumvarpsins þar sem sett eru fram nokkuð ströng skilyrði að mínu mati sem frelsiselskandi þingmanni. Þar eru skilyrði fyrir veitingu smásöluleyfis, um afgreiðslutíma og ég spyr: Er gert ráð fyrir því að það megi selja frá kl. 9 að morgni til kl. 8 að kvöldi? Það er nákvæmlega eins og ríkið gerir í dag og þarna er fullt af skilyrðum sem takmarka aðgengi ef menn telja að það leiði til minni neyslu.