145. löggjafarþing — 21. fundur,  15. okt. 2015.

verslun með áfengi og tóbak o.fl.

13. mál
[16:56]
Horfa

Bjarkey Gunnarsdóttir (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Það er nú akkúrat þannig. Ég er stolt að vera fulltrúi þingmanna í hópi talsmanna barna, og ég tek það fram að þar eiga allir flokkar aðkomu. Við hittum talsmenn barna einmitt nú fyrir helgi og þau hvöttu okkur þingmenn til þess að greiða þessu frumvarpi ekki atkvæði okkar. En ég er því miður hrædd um að það verði ekki alveg þannig því að í okkar hópi er m.a. að finna einn af þeim sem eru á þessu máli.

Ég tek undir það með hv. þingmanni og það kom fram í nefndinni þegar málið kom síðast til hennar að það er ekkert sem mælir með þessu frumvarpi, það er ekkert sem styður það, ekki heldur þeir 23 aðilar sem sendu okkur áskorun eða margir aðrir sem komu fyrir nefndina. Þeir sögðu: Til hvers? Þetta er bara til að auka á áhættuna, við eigum ekki að samþykkja þetta.

Ég vitnaði áðan í grein frá 7. júní eftir Róbert H. Haraldsson. Þar kemur fram að bresk börn þekkja áfengistegundir betur en vinsælustu kex- og ístegundirnar. Af hverju ætti það að verða eitthvað öðruvísi hér á landi? Af hverju getum við ekki heimfært þetta yfir á okkur?

Það kemur líka fram að í 74% tilvika sem börn hljóta illa meðferð kemur áfengi við sögu. Það eru engin ný sannindi fyrir okkur. Við vitum það alveg. Þess vegna finnst mér það svo sorglegt að stefnt sé í þessa átt þrátt fyrir að við séum með kerfi sem þó telst vera hvað skást af því sem í boði er, eins og fram kemur hjá Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni þar sem skást þykir að áfengi sé selt í sérverslun, það var mjög ofarlega á skalanum 1–10, ég man ekki hvort sá kostur var nr. 2 eða eitthvað svoleiðis. Maður skilur ekki alveg tilganginn með þessu. Og þegar vel hugsandi og ábyrgt fólk sem leggur svona fram, þá hugsar maður auðvitað: Hverra erinda er verið að ganga? Það er ekki verið að hugsa um börnin í þessu tilfelli. Það er ekkert sem styður það.