verslun með áfengi og tóbak o.fl.
Virðulegi forseti. Mig langar bara til að hafa það alveg kýrskýrt að ég er ekki hingað kominn til að tefja. Ég tek ekki þátt í þessari umræðu til að tefja, ekki af neinum ástæðum, heldur til að taka þátt í þeirri mikilvægu og á margan hátt sérstæðu umræðu sem þetta mál heimilar á þinginu. Mér finnst alveg hræðilegt hvernig málþófshefðin á Alþingi hefur dregið úr trúverðugleika allrar umræðu hér og þess vegna sjáum við ekki þingmenn meiri hlutans nema í hliðarsal. Mér finnst eiginlega verst við allt þetta málþófsstúss að það dregur úr trúverðugleika þess að við getum átt einhverjar rökræður hérna. En hér er tækifærið og við eigum að nýta það.
Með hliðsjón af því að sú umræða virðist ekki lengur til staðar, hún var ágæt í dag að miklu leyti, legg ég til að við förum frekar í hin málin sem eru á dagskrá sem eru öll tiltölulega óumdeild eftir því sem ég fæ best séð, t.d. embætti umboðsmanns aldraðra, mál sem ég held að ætti að fljúga í gegn og væri fínt að koma strax í nefnd. Ég legg þetta til í ljósi þess að málefnalegu umræðuna virðist einhvern veginn ætla að (Forseti hringir.) þrjóta hér með kvöldinu.