145. löggjafarþing — 21. fundur,  15. okt. 2015.

verslun með áfengi og tóbak o.fl.

13. mál
[18:06]
Horfa

Svandís Svavarsdóttir (Vg) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Ég vænti þess að í lok þessarar lotu um fundarstjórn forseta verði forseti við þeirri ósk sem hér hefur verið borin upp, að við fáum upplýsingar um það hvort heilbrigðisráðherra sé væntanlegur til þingfundarins fyrir lok fundar hér á eftir, einhvern tíma fyrir klukkan átta. Eins og hér hefur komið fram mun ekki ganga að ljúka 1. umr. um þetta mál og koma málinu til nefndar öðruvísi en að ráðherrann komi að. Við erum með stefnu ríkisstjórnarinnar í áfengis- og vímuefnamálum, við erum með fjármálaráðherra, formann Sjálfstæðisflokksins, sem hefur lýst þessu máli sem forgangsmáli, þ.e. að fara þvert á heilbrigðisstefnuna, og okkur vantar heilbrigðisráðherrann til að segja okkur frá því um hvað málið snýst. Þannig er það, virðulegi forseti, og vildi nú forseti vera svo vænn að gera okkur grein fyrir niðurstöðu þessarar könnunar?