145. löggjafarþing — 22. fundur,  19. okt. 2015.

vísun skýrslu Ríkisendurskoðunar til nefndar.

[15:05]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Með bréfi, dagsettu 13. október sl., hefur forseti óskað eftir því, samanber ákvæði 8. töluliðar 1. mgr. 13. gr. þingskapa, við stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd að hún fjalli um skýrslu Ríkisendurskoðunar um fjármálastjórn Landbúnaðarháskóla Íslands.