145. löggjafarþing — 22. fundur,  19. okt. 2015.

skattar og gjöld á vistvæn ökutæki og eldsneyti.

221. mál
[16:24]
Horfa

Steingrímur J. Sigfússon (Vg):

Frú forseti. Það er best að taka það strax fram að ef hæstv. ráðherra vantar mannskap í starfshópinn þá er ég í framboði. Ég hef mikinn áhuga á þessum málum og finnst það gott í sjálfu sér að hópurinn sé að fara af stað, en um leið dapurlegt að það er að gerast núna þegar langt er liðið á kjörtímabilið og lítið hefur gerst innan þess annað en að framlengja tímabundið og til eins árs í senn ráðstafanir frá tíð fyrri ríkisstjórnar. Þá var mikið gert í þessum efnum. Skattalegt umhverfi umferðarinnar var í raun algerlega endurskoðað með því að gera losun koltvíoxíðs að andlagi fyrir tolla á innflutningsgjöld og greiðslu bifreiðagjalda, fella niður álögur á rafbíla og metanbíla, taka upp kolefnisgjald o.s.frv. En það hefur alltaf legið fyrir að þessu þyrfti að fylgja eftir með því að skapa fyrirsjáanleika og varanleika í skattumhverfinu vegna þess að meðan það gerist ekki þá hamlar þessari þróun óvissan um hversu lengi verður viðhaldið einhverju hagræði fyrir þessa umferð. Fyrr eða síðar kemur að því að hún verður að fara að leggja eitthvað af mörkum til að byggja upp vegakerfið og reka það. (Forseti hringir.) Hvernig verður það gert og hvert verður hagræðið sem hún nýtur til lengri framtíðar? (Forseti hringir.) Það eru spurningarnar sem kaupendur nýrra bíla spyrja sig. Ef við viljum hraða þessari þróun þá þurfum við að (Forseti hringir.) svara þessum spurningum og það helst þótt fyrr hefði verið.