skattar og gjöld á vistvæn ökutæki og eldsneyti.
Virðulegi forseti. Þetta er áhugaverð umræða, bæði hjá fyrirspyrjanda og hæstv. ráðherra, og komið er inn á flesta meginþætti málsins. Það blasir við að í nánustu framtíð verða straumhvörf í rafvæðingu bílaflotans. Það er hins vegar mikilvægt að ýta hressilega á eftir þeirri þróun. Hún hefur gengið giska hægt fyrir sig á síðustu missirum.
Mikil og ör tækniþróun á sér stað í framleiðslu bílvéla o.s.frv., en það þarf að gera það að mjög hagkvæmum kosti fyrir neytendur og setja upp stöðvar sem gera að verkum að hægt sé að nýta sér þetta af fullum þunga. Þess vegna er mjög ánægjulegt að hæstv. ráðherra lýsi því hér yfir að það standi til, eins og spurt er um, að marka afgerandi stefnu til lengri tíma í málaflokknum þannig að hraða megi þessari mikilvægu þróun í umhverfismálum og eins (Forseti hringir.) neytendamálum almennt. Það getur sparað hverri fjölskyldu hundruð þúsunda á ári að eiga þess kost að aka um á rafbíl í stað bensínbíls.