145. löggjafarþing — 24. fundur,  21. okt. 2015.

störf þingsins.

[15:13]
Horfa

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir (Sf):

Hæstv. forseti. Ég heyri það á þingmönnum Framsóknarflokksins að farið er að færast fjör í leikinn og krafa þeirra um afnám verðtryggingar eykst. Ég er ánægð með að beiðni mín um sérstaka umræðu við forsætisráðherra hefur haft þessi áhrif og hreyft við málinu. En það kemur líka fram í máli þingmannanna að verkefnið sé á borði fjármálaráðherra.

Það sætir furðu að sú skoðun sé hér uppi á borðum. Af hverju sætir það furðu? Jú, því að afnám verðtryggingar var eitt af aðalkosningamálum Framsóknarflokksins. Það er eitt af stefnumálum ríkisstjórnar Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar.

Hæstv. forsætisráðherra lýsti því yfir á heimasíðu ráðuneytisins að ráðherranefnd um úrlausnir skuldamála heimilanna mundi skipa verðtryggingarvakt til að tryggja samfellu í framgangi áætlunar um afnám verðtryggingar á nýjum neytendalánum. Svo sannarlega er þetta verkefni á hans ábyrgð og það var undirstrikað með skipulagsbreytingum í forsætisráðuneytinu í gær til þess að skýra forustu verkstjórnar og samræmingarhlutverk forsætisráðuneytisins.

Og hvernig get ég skilið þetta hik á hæstv. forsætisráðherra, herra forseti? Það eru tvær skýringar á því máli. Annaðhvort hefur Framsóknarflokkurinn gefist upp á verkefninu og kastað ábyrgðinni yfir á hæstv. fjármálaráðherra, sem er jú sjálfstæðismaður, og Sjálfstæðisflokkurinn er á móti afnámi verðtryggingar. Nú, eða kannski er skýringanna að leita í viðtali við hæstv. fjármálaráðherra sem lýsti því yfir í morgun að hann væri mjög opinn fyrir breyttri skipan ríkisstjórnarinnar. Kannski er það svo að þeir ætli að skipta um sæti, forsætisráðherrann og fjármálaráðherrann. (Forseti hringir.) Kannski er hæstv. forsætisráðherra á leiðinni í fjármálaráðuneytið og þá verður áhugavert að fylgjast með því hvort Framsóknarflokkurinn meinar yfir höfuð eitthvað með loforðum sínum. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)


Efnisorð er vísa í ræðuna