145. löggjafarþing — 24. fundur, 21. okt. 2015.
beiðni um umræðu um afnám verðtryggingar.
Það liggur fyrir svar frá hæstv. forsætisráðherra sem forseti hefur komið á framfæri, m.a. við þá sem hafa óskað eftir þessari umræðu, um að forsætisráðherra líti svo á að þetta mál sé á borði hæstv. fjármálaráðherra, um það hafi verið tekin ákvörðun á sínum tíma að færa þetta mál til frekari úrvinnslu hjá hæstv. fjármálaráðherra.