145. löggjafarþing — 24. fundur,  21. okt. 2015.

dagskrártillaga.

[19:24]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Forseta Alþingis hefur borist svohljóðandi bréf:

„Við undirrituð gerum tillögu um, með vísan í 1. mgr. 77. gr. þingskapalaga, að fyrstu mál á dagskrá næsta fundar verði eftirfarandi liðir:

1. Óundirbúnar fyrirspurnir.

2. Sérstök umræða, kl. 12.00, um verðtrygginguna og stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar. Málshefjandi verði Sigríður Ingibjörg Ingadóttir og til svara verði forsætisráðherra.

3. Alþjóðleg þróunarsamvinna Íslands o.fl. (aukin skilvirkni, skipulag, Þróunarsamvinnustofnun Íslands), stjfrv. (utanrrh.), 91. mál, þskj. 91, nál. 285 og 299. — Frh. 2. umr.

4. Gjaldtaka á ferðamannastöðum, sérstök umræða kl. 13.30. Málshefjandi Ögmundur Jónasson, til svara iðnaðar- og viðskiptaráðherra.

5. Greining á sameiginlegum ávinningi að vestnorrænum fríverslunarsamningi og vestnorrænu viðskiptaráði, þáltill. (ÍVN), 75. mál, þskj. 75. — Fyrri umr.

6. Langtímastefna fyrir samgöngur og innviði á Vestur-Norðurlöndum, þáltill. (ÍVN), 76. mál, þskj. 76. — Fyrri umr.

7. Samstarf við Grænland og Færeyjar um sjávarútvegsmál, þáltill. (ÍVN), 77. mál, þskj. 77. — Fyrri umr.

Við óskum, virðulegi forseti, eftir því að tillaga þessi verði í samræmi við tilvitnaða grein þingskapa borin upp til atkvæða á Alþingi.“

Undir þetta skrifa hv. þingmenn Helgi Hjörvar, Svandís Svavarsdóttir, Helgi Hrafn Gunnarsson og Páll Valur Björnsson.

Í samræmi við áður tilvitnaða grein, 77. gr. þingskapalaga, verður þessi tillaga tekin til afgreiðslu og atkvæðagreiðslu í upphafi þingfundar á morgun.