145. löggjafarþing — 25. fundur,  22. okt. 2015.

alþjóðleg þróunarsamvinna Íslands o.fl.

91. mál
[16:11]
Horfa

Lilja Rafney Magnúsdóttir (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er þetta með þá áráttu valdamanna hverju sinni að vilja alltaf draga til sín verkefni, þótt menn tali kannski öðruvísi við almenning til að fá stuðning þegar þeir taka að sér veigamikil hlutverk eins og að vera þingmaður, ég tala nú ekki um ráðherra. Þá tala menn um að stunda lýðræðisleg vinnubrögð og hafa gegnsæi í öllum hlutum og um skilvirkni og hvað sem við nefnum í þeim efnum. En svo er það oftar en ekki tilhneigingin að draga undir væng sinn verkefni til þess að hafa áhrif á framkvæmd og það hvernig málin þróast. Sumir hlutir eru þannig að við verðum að gefa stofnunum eins og Þróunarsamvinnustofnun, sem hefur sýnt að hún vinnur vel og hefur fengið gæðastimpla í mörgum óháðum úttektum frá þróunarsamvinnunefnd OECD og öðrum, og þeim fagaðilum sem þar starfa frelsi til þess að vinna áfram að þeim mannúðarverkefnum sem þar eru undir. Númer eitt, tvö og þrjú eru þær áherslur sem við eigum að hafa í þessum málaflokki. Við eigum ekki að fara að taka áhættu í þeim efnum og blanda og hræra þetta saman í grautarpotti innan utanríkisráðuneytisins við ýmislegt annað sem er algjörlega óskylt málaflokknum og á ekki að blanda saman við hann, eins og viðskiptahagsmunum.