145. löggjafarþing — 27. fundur,  3. nóv. 2015.

tekjuskattur o.fl.

172. mál
[15:26]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta efh.- og viðskn. (Katrín Jakobsdóttir) (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Hv. þm. Ásmundur Einar Daðason er líka fastur á kunnuglegum stað, Icesave-staðnum, sem er greinilega erfitt að losna út úr ef maður er einu sinni kominn inn í það búr. Eins og hefur komið fram er búið að greiða megnið af þessari Icesave-skuld með inneignum bankans þannig að væntanlega værum við stödd á þeim stað eins og við erum í dag.

Hvað varðar greiðslujafnaðargreiningu þá var óskað eftir því, m.a. í efnahags- og viðskiptanefnd, að hún yrði gerð. Það er erfitt að gera greiðslujafnaðargreiningu fram í tímann — það kom líka fram hjá þeim aðilum sem þar var rætt við, fjármálaráðuneyti og Seðlabanka — af því að ýmsir utanaðkomandi þættir geta haft mjög mikil áhrif á greiðslujöfnuð.

Það sem ég hefði viljað sjá eru í rauninni fleiri sviðsmyndir dregnar upp þegar við skoðum utanaðkomandi aðstæður. Viðskiptakjör geta haft mjög mikið að segja um það hvernig greiðslujöfnuður teiknar sig upp fram í tímann. Það hefur verið gerð tilraun til þess. Það er líka vegna þess að kallað var eftir því (Forseti hringir.) innan nefndarinnar. Ég held að það hefði farið betur ef samráðsnefndin eða efnahags- og viðskiptanefnd (Forseti hringir.) hefði verið betur upplýst framan af um málið því að þá væri hún með miklu skýrari gögn í höndunum núna.