145. löggjafarþing — 27. fundur,  3. nóv. 2015.

tekjuskattur o.fl.

172. mál
[23:06]
Horfa

Björn Valur Gíslason (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Mér þykir ljóst á þeirri ákvörðun formanna stjórnarflokkanna að hafa valið afarkostinn sem þeir kynntu í sumar — þeir reyndar kynntu fyrsta kostinn, nefndu það í framhjáhlaupi að til væri önnur leið, sem héti samkomulag um stöðugleikaframlag, en það væri afarkostur. Þetta var sagt af hálfu formanns Sjálfstæðisflokksins og hæstv. fjármálaráðherra Bjarna Benediktssonar.

Miðað við kynninguna, sem þá var á stöðugleikaskattinum, miðað við þessa lendingu sem hér er, að teknu tilliti til áberandi deilna sem voru á milli þessara tveggja flokka um leiðir varðandi framlengingu á Landsbankabréfinu fyrir rúmu ári, þ.e. að það yrði samið um málið — annars vegar var það sú lína sem hæstv. fjármálaráðherra vildi fara, að semja um málin og leiða þau til lykta. Og ég er sammála því. Það er alltaf betra að leiða mál til lykta með samningum en það skiptir máli hvernig er samið. Það þurfa að vera góðir samningar. En besta leiðin er að ljúka málum með samningum, það er ævinlega þannig í mannlegum samskiptum hvernig svo sem þau eru.

Þessar deilur hafa kristallast allt þetta ár og komu greinilega fram í kynningunni í Hörpu þegar stöðugleikaskattsleið var kynnt sem stóð ekki til að fara vegna þess að í glærunum stóð: Það er búið að semja. Það er búið að semja, var sagt í glærusjóinu þegar höfðingjarnir voru gengnir úr húsi og embættismenn teknir við.

Þetta hefur kostað mikla fjármuni, þessar deilur formanna stjórnmálaflokkanna hafa kostað okkur mikla fjármuni, tafir á málinu. Mig langar að spyrja hv. þingmann hvort hann geti ímyndað sér hvað þessar tafir og deilur hafi kostað okkur í beinhörðum peningum og hvort hann sé sammála þeirri greiningu sem ég er að reyna að draga upp hér, um að (Forseti hringir.) ágreiningur hafi verið uppi á milli formanna stjórnmálaflokkanna um leiðir í þessu máli.