tekjuskattur o.fl.
Herra forseti. Í umræðunum hér í gær gerðum við ýmsar athugasemdir við það hvernig þetta mál hefur þróast frá því í vor. Samráð við stjórnarandstöðu hefur verið lítið sem ekkert. Samráðsnefnd um losun hafta var kölluð saman á lokaspretti málsins. Málið hefur verið kynnt á mjög ógagnsæjan hátt þannig að ýmsum tölum er raðað saman til að láta stöðugleikaframlögin vera jafngild stöðugleikaskatti en síðan kemur líka fram í máli stjórnvalda að tölurnar skipti ekki máli þó að þær spili aðalhlutverkið í kynningu málsins.
Ég vonaðist til að þetta mál hefði verið hægt að vinna með miklu gagnsærri hætti í miklu betri samstöðu stjórnar og stjórnarandstöðu, enda kom sá skýri vilji fram hjá stjórnarandstöðunni í vor að hún væri reiðubúin til þess samstarfs.
Enn er ýmsum spurningum ósvarað um framhald málsins, t.d. hvað varðar aflosun hafta á almenning, hvernig við ætlum að sjá fjárfestingarþörf lífeyrissjóðanna uppfyllta til lengri tíma. Ýmsum þáttum þessa máls er skotið inn í framtíðina og af þeim sökum mun ég sitja hjá við afgreiðslu þessa frumvarps.