145. löggjafarþing — 29. fundur,  4. nóv. 2015.

tekjuskattur o.fl.

172. mál
[21:03]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Mig langaði bara að endurspegla orð hv. 12. þm. Suðvesturkjördæmis þegar hún sagði að hún hefði viljað styðja þetta mál. Ég hefði viljað geta stutt þetta mál en miðað við vinnubrögðin sem hafa verið tíunduð hér nokkrum sinnum þá er mér það ókleift og því sit ég hjá.