145. löggjafarþing — 29. fundur,  4. nóv. 2015.

tekjuskattur o.fl.

172. mál
[21:12]
Horfa

Vigdís Hauksdóttir (F) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Ég fagna þessari atkvæðagreiðslu og því að þetta mál sé nú loksins í höfn. Það er einkennilegt að hlusta á dylgjur og samsæriskenningar hluta stjórnarandstöðunnar en ég ætla að hrósa þingmönnum Bjartrar framtíðar fyrir að taka þá ákvörðun með okkur ríkisstjórnarflokkunum að greiða þessu atkvæði.

Það er skrýtið að áhyggjur núverandi stjórnarandstöðuflokka, þ.e. Samfylkingar og Vinstri grænna, skuli snúa í þá veru á þessum degi. Þetta eru flokkarnir sem ætluðu að fara á einni nóttu með Icesave í gegnum þingið, ekki einu sinni, ekki tvisvar, heldur þrisvar. Þá var ekki verið að hafa áhyggjur af því hvernig þjóðinni mundi reiða af. Sýnt hefur verið fram á að landsmenn eru í hér forgangi, stöðugleika er ekki ógnað og það er einkennilegt að hlusta á þingmenn hrópa á ráðherra í umræður í málum sem eru hjá þinginu og þingmönnum er ætlað að leysa.