fjáraukalög 2015.
Frú forseti. Á bls. 42 í fjáraukalagafrumvarpinu er farið yfir hlutverk fjáraukalaga samkvæmt fjárreiðulögum en fjárreiðulög gera ráð fyrir að allar fyrirsjáanlegar fjárráðstafanir komi fram í fjárlögum en í fjáraukalögum innan fjárhagsársins verði leitað eftir heimildum fyrir þeim fjárráðstöfunum sem ekki er hægt að sjá fyrir við afgreiðslu fjárlaga.
Þrátt fyrir þessi ákvæði í fjárreiðulögum eru hér nokkur atriði og nokkrar tillögur sem voru algerlega fyrir séðar. Ég vil nefna vegagerð vegna álags vegna fjölgunar ferðamanna. Gerðar voru tillögur um fjárveitingu í það. Það var fellt af stjórnarmeirihlutanum. Tillögurnar komu svo í fjáraukalögum. Hið má segja um framkvæmdir á ferðamannastöðum. Það var nefnt í nefndaráliti, það var í umræðum og tillögur settar fram en stjórnarmeirihlutinn felldi þær.
Ég vil spyrja hæstv. ráðherra: Hvernig stendur á því að hann semur (Forseti hringir.) fjáraukalög sem fara með svo skýrum hætti gegn hlutverki fjárreiðulaga?