145. löggjafarþing — 29. fundur,  4. nóv. 2015.

fjáraukalög 2015.

304. mál
[22:01]
Horfa

Bjarkey Gunnarsdóttir (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir ræðuna. Mig langar að byrja á því að segja að staðan er kannski svona að mestu leyti vegna hinna auknu arðgreiðslna. Þegar þær eru dregnar frá versnar frumjöfnuðurinn um liðlega 3 milljarða frá áætlun fjárlaga, segir hér á bls. 44. En mig langaði í þessu stutta andsvari að spyrja hæstv. ráðherra, af því að mér finnst einkennilegt að ekki sé gert ráð fyrir áhrifum kjarasamninga nema að litlu leyti í frumvarpinu, hvort ráðuneytið hafi ekki verið búið að meta áhrif kjarasamninga áður en ríkið skrifaði undir. Þetta frumvarp er nýkomið fram og talað er um að ekki sé tekið tillit til gerðardóms. Mér finnst mjög sérstakt ef svo hefur ekki verið.

Mig langar líka til að spyrja hæstv. ráðherra hvers vegna 428 milljarðar í ófyrirséðum útgjöldum eru felldir niður þar sem maður hefði kannski hugsað sér að taka ætti peningana úr frumvarpi til fjáraukalaga.