fjáraukalög 2015.
Frú forseti. Ég hefði viljað sjá betur útfærðar tölur í frumvarpinu og þá leiðréttinguna á milli umræðna.
Annað sem mig langar til að vekja athygli ráðherra á og spyrja út í er hvort það geti verið mistök að á bls. 45 í frumvarpinu stendur, varðandi arðgreiðslur og lækkun frá Seðlabankanum, að það séu 3 milljarðar en 2,1 milljarður á bls. 52 og ég spyr hvor talan sé réttari.
Mig langar líka að spyrja hæstv. ráðherra: Verið er að tala um að ekki eigi að færa fjárheimildir milli fjárfestinga og rekstrar. Hins vegar er gerð tillaga um það hjá Fjársýslunni að færa 40 millj. kr. á milli þessara þátta. Það er ekki í samræmi við opinberu fjárlögin, sem við erum að vinna með hér, og síðan væri áhugavert að vita af hverju ekki var búið að ráða nýjan fjársýslustjóra sem hefði haft mikil áhrif varðandi hið nýja frumvarp um opinber fjármál; það er enginn í brúnni þar fyrr en þá eftir áramótin.
Það er þetta tvennt, það er arðgreiðslan á bls. 45 og svo á bls. 52, þar sem annars vegar er talað um lækkun upp á 3 milljarða og hins vegar 2,1 milljarð.