145. löggjafarþing — 29. fundur,  4. nóv. 2015.

fjáraukalög 2015.

304. mál
[22:11]
Horfa

Frosti Sigurjónsson (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra fyrir ágæta kynningu á þessu frumvarpi. Ég fagna líka niðurstöðunni sem er öllu vænlegri, vænkast um 17 milljarða frá fjárlagafrumvarpinu sjálfu. Því ber að fagna, það er mjög ánægjulegt.

Ég vildi grennslast um það sem stendur á bls. 45 um að nú sé gert ráð fyrir því að sala á samtals 35% eignarhlut í Landsbankanum muni öll fara fram á árinu 2016. Ég vil spyrja hæstv. ráðherra hvort hann telji það líklegt í ljósi þess að nú gæti Arion banki farið í söluferli og svo komi hugsanlega Íslandsbanki í hendur ríkisins, hvort það sé raunhæft og jafnvel æskilegt ef markmiðið er að ná góðu verði fyrir Landsbankann að ráðast í þessa sölu á næsta ári eða gera ráð fyrir henni.