markmið Íslendinga í loftslagsmálum.
Virðulegi forseti. Ég vil nú að bíða með að kynna hér í smáatriðum hvað ég ætla að leggja til því þetta er í vinnslu enn þá og ég vil fá þessa viku til að vinna úr þeim hugmyndum. Þó að vinnunni sé stýrt af umhverfisráðuneytinu þá gat ég um að sex ráðuneyti koma að þessu og vinna að þessu plaggi þannig að það er ekki eðlilegt að ég kynni það nú.
Ég vil jafnframt geta þess að við höfum samið við Hagfræðistofnun Háskóla Íslands til að hjálpa okkur við útreikninga á þessu efnahagslega og hvernig þetta gæti komið út frá því sjónarhorni. Ég er ekki búin að fá þá skýrslu í hendur. Ég vona að þess verði ekki langt að bíða.
Ég tek samt undir það með forsætisráðherra að í öllum ógnunum geta líka falist ákveðin tækifæri vegna þess að fólk fer að hugsa öðruvísi og mér finnst ég skynja það að fólk hugsar öðruvísi um loftslagsmál núna en það gerði fyrir tveimur, þremur árum. Við verðum kannski duglegri við að reyna að afla okkur nýrrar tækni eða þá að ganga betur um þau auðæfi eða auðlindir sem við eigum o.s.frv., þannig að þar eru tækifæri.