145. löggjafarþing — 30. fundur,  10. nóv. 2015.

kynferðisbrot gagnvart fötluðum.

[14:00]
Horfa

félags- og húsnæðismálaráðherra (Eygló Harðardóttir) (F):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina og tek undir með þingmönnum að ég held að við sem samfélag höfum verið slegin yfir fréttum af ofbeldi. Við töluðum um ofbeldi gegn fötluðum konum þar sem fallið var frá ákæru í málinu þrátt fyrir ítarlega rannsókn og vinnu réttindagæslu velferðarráðuneytisins. Eins hefur verið umfjöllun um möguleg kynferðisbrot í íbúð í Hlíðunum sem kærð hafa verið til lögreglu. Ég held að tilfinningin hjá okkur öllum sé sú að ofbeldi fá einfaldlega að viðgangast um of í samfélagi okkar.

Það er ástæðan fyrir því að innanríkisráðherra og mennta- og menningarmálaráðherra og ég undirrituðum samstarfsyfirlýsingu um landssamráð um aðgerðir gegn ofbeldi og afleiðingum þess. Við byggjum þá yfirlýsingu á því að við vitum að ákveðnir hópar í samfélaginu eru varnarlausari en aðrir. Þeir eru í meiri hættu að verða fyrir ofbeldi. Þess vegna viljum við að samstarfið nái einkum til ofbeldis gegn börnum, ofbeldis í nánum samböndum, kynferðislegs, andlegs og líkamlegs ofbeldis gegn fötluðu fólki og öðrum berskjölduðum hópum. Við tölum líka um hatursorðræðu. Fyrsti fundur þessa landssamráðs var haldinn þann 29. október síðastliðinn. Við gerum ráð fyrir að haldinn verði fundur fljótlega á ný og vinnunni hraðað eins og hægt er. Þess vegna hef ég líka undirritað nýja reglugerð gegn einelti, kynferðislegri áreitni og kynbundinni áreitni og ofbeldi á vinnustöðum sem gildir um alla vinnustaði. Það er engin undantekning frá þeirri reglugerð. Við höfum líka verið að auka framlög til ráðgjafar og meðferðar gegn ofbeldi með framlögum til geðdeildar Landspítalans, Sjúkrahússins á Akureyri, Stígamóta, Kvennaathvarfsins, Karla til ábyrgðar og útvíkkun á starfsemi Barnahúss.

Ég mun á næstu dögum funda með hagsmunasamtökum fatlaðs fólks til að fara yfir stöðu skjólstæðinga þeirra og hvernig við eigum að standa að skipun starfshóps um orlofsmál fatlaðs fólks. Við verðum að halda áfram að vinna gegn ofbeldi. Við verðum að halda (Forseti hringir.) áfram að bæta starfsferla okkar og hlusta eftir gagnrýni og ábendingum um hvað betur megi fara.