145. löggjafarþing — 30. fundur,  10. nóv. 2015.

fjáraukalög 2015.

304. mál
[15:56]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svörin. Hann talaði um að þetta verði að vera rétt útfært og að ekki eigi að leggja bankanum til fé. En það er það sem ríkissjóður er búinn að gera, það er búið að leggja bankanum til fé. Eitt af verkefnunum hvað varðar Íbúðalánasjóð snýr að því að ekki má ganga þannig fram að samkeppnislög séu brotin. Það er því ekki svo gott að hægt sé að segja að það eigi bara að útfæra hlutina á réttan hátt.

Það var markmið Íbúðalánasjóðs að veita hagstæðari íbúðalán en bankarnir gætu gert. Niðurstaðan varð sú sem við þekkjum. Síðan er bankahrunið og fasteignahrunið alveg sérumræða. Við mátum áhættuna ekki rétt þar og erum svo sem ekkert voðalega mikið að gera það núna. En ef við erum mjög stórtæk á bankamarkaðinum erum við með tvöfalda áhættu, annars vegar kerfisáhættu og síðan eru það fjármunir skattgreiðenda sem við höfum sett inn í bankana.

Þetta hefur verið reynt hvað eftir annað og ekki bara á þessu sviði — sem betur fer er maður fljótur að gleyma. Hér var ríkisprentsmiðja, Gutenberg, hún átti að sjá til þess að landsmenn fengju prentverkið á betra verði en annars en af einhverjum ástæðum hafa vestræn ríki metið það sem svo, eftir mikil áföll, að áhætturekstur fari ríkinu ekki vel. Og ég held að það hafi ekkert breyst núna.

Það sem við þurfum að gera, af því að hv. þingmaður nefndi einkabanka, er að huga að því hvernig við eigum að lágmarka áhættu skattgreiðenda af bankarekstri. Það getur vel verið að ég og hv. þingmaður séum sammála um ýmislegt hvað það varðar, en ég held að það vanti aðallega samkeppni á þessum markaði en ekki aukinn ríkisrekstur. Ég hef aldrei nokkurn tímann séð hann virka til að ná þeim markmiðum.