fjáraukalög 2015.
Herra forseti. Ég er ekki jafn áhyggjulaus og hv. þingmaður. Ég hef áhyggjur af því að ef menn geta ekki farið eftir þessum fjárreiðulögum þá fari þeir ekkert frekar eftir nýjum fjárreiðulögum.
Hv. þingmaður talaði hér um barnabætur og hvað það væri mikið gleðiefni að þær skuli lækka. Ég vil spyrja hv. þingmann hvort hann telji það réttlætanlegt — eins og ástandið er hér á landi og kannanir hafa sýnt, t.d. með upplýsingum um fátækt barna og stöðu sumra barnafjölskyldna hér á landi — að barnabætur byrji að skerðast við 200 þús. kr. mánaðarlaun hjá einstaklingi og við 400 þús. kr. mánaðarlaun hjá hjónum.
Finnst hv. þingmanni það sæmandi, við þær aðstæður sem greiningar sýna að margar barnafjölskyldur búa við, að við séum með þannig viðmið? Ég spyr hvort hann sé ekki sammála mér í því að við þurfum að taka þau upp og breyta þeim.