145. löggjafarþing — 30. fundur,  10. nóv. 2015.

fjáraukalög 2015.

304. mál
[16:41]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég verð alltaf svo hreinskilinn þegar ég tala við hv. þm. Frosta Sigurjónsson eins og menn kannski tóku eftir áðan. (VigH: Hefur svo góð áhrif á þig.) Já, hv. þingmaður hefur góð áhrif á mig. Ég er mjög hreinskilinn þegar ég segi að uppáhaldsskekkjurnar mínar eru þegar við fáum bara miklu meira í ríkissjóð en við ætluðum. Ef ég skil aðferðafræðina rétt, hæstv. ráðherra hefur farið yfir hana hér, er það þannig að Bankasýslan kemur með sitt mat áður en ákvörðun er tekin og það er sett inn í fjárlögin. Auðvitað er þetta mikil skekkja en mér finnst betra þegar menn eru varfærnir í þessu en hitt. Ég skal alveg viðurkenna að af öllum þeim liðum sem eru skekkjur í, sem eru því miður of margir, truflar þessi mig minnst. Ég veit ekki hvort við eigum að breyta þessari aðferðafræði. Úr því að við erum með Bankasýslu veit ég ekki hverjir (Forseti hringir.) aðrir ættu að koma með áætlunina en hún.