145. löggjafarþing — 30. fundur,  10. nóv. 2015.

fjáraukalög 2015.

304. mál
[18:45]
Horfa

Lárus Ástmar Hannesson (Vg) (andsvar):

Forseti. Hv. þingmaður fjallar mikið um vinstri sinnaða stjórnmálamenn og ég er klárlega í þeim hópi og er stoltur af því, sérstaklega þegar kemur að umræðu eins og þessari um dreifikerfi Símans. Hér inni sitja þingmenn af landsbyggðinni og þekkja þá umræðu sem er tekin á hverjum einasta fundi þar sem stjórnmálamenn frá Alþingi hitta sveitarstjórnarmenn. Það er sú mismunun sem á sér stað varðandi þjónustu. Hv. þingmaður talaði hér um hratt netsamband og annað slíkt. Það búa ekki allir við það, það er nú heila málið. Um það snýst þetta.

Ég ætla svo sem ekkert að fara lengra í þetta, en ég vil bara ítreka að ég held að við værum mun betur stödd ef við ættum þó ekki væri nema dreifikerfi Símans þannig að við gætum gert þá kröfu að íbúar þessa lands sætu við sama borð.