145. löggjafarþing — 30. fundur,  10. nóv. 2015.

happdrætti og talnagetraunir.

224. mál
[18:52]
Horfa

innanríkisráðherra (Ólöf Nordal) (S):

Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um Happdrætti Háskóla Íslands, nr. 13/1973, lögum um happdrætti fyrir Samband íslenskra berkla- og brjóstholssjúklinga, nr. 18/1959, lögum um happdrætti Dvalarheimilis aldraðra sjómanna, nr. 16/1973, og lögum um talnagetraunir, nr. 26/1986, öll með síðari breytingum.

Í frumvarpinu er gerð tillaga að framlengingu starfsleyfa þessara happdrætta um 15 ár, eða til 1. janúar 2034, en starfsleyfin sem þeim hefur verið veitt með sérlögum um hvert happdrætti fyrir sig renna öll út um áramótin 2018/2019. Með framangreindum lögum er Háskóla Íslands og tilteknum félagasamtökum veitt heimild til að starfrækja happdrætti og talnagetraunir til styrktar mikilvægum málum. Happdrætti Háskóla Íslands, sem hefur haft leyfi frá árinu 1934, hefur staðið undir öllum byggingarframkvæmdum og tækjakaupum fyrir Háskóla Íslands og þannig verið honum ómetanleg lyftistöng og jafnframt sparað ríkissjóði útgjöld.

Ágóða af Happdrætti SÍBS, sem hefur haft leyfi til að starfrækja happdrætti frá árinu 1949, skal varið til að greiða stofnkostnað við byggingarframkvæmdir Reykjalundar, endurhæfingarmiðstöðvar, til byggingar vinnustofu fyrir öryrkja og til annarrar félagsmálastarfsemi Sambands íslenskra berkla- og brjóstholssjúklinga.

Sjómannadagssamtökin í Reykjavík og í Hafnarfirði hafa staðið að rekstri Happdrættis DAS frá upphafi, eða frá árinu 1954. Ágóði af happdrættinu rennur til byggingarframkvæmda fyrir aldraða á vegum samtakanna.

Íþróttasamband Íslands, ÍSÍ, og Ungmennafélag Íslands, UMFÍ, auk Öryrkjabandalags Íslands, hafa haft leyfi til að starfrækja saman talna- og bókstafagetraunir frá árinu 1986 og er starfsemi þeirra rekin í nafni Íslenskrar getspár. Ágóða af starfseminni skal varið til eflingar íþrótta- og ungmennastarfi í landinu og til að greiða stofnkostnað við íbúðarhúsnæði fyrir öryrkja eða til að standa undir annarri starfsemi Öryrkjabandalagsins í þágu öryrkja. Hefur reksturinn haft mikla fjárhagslega þýðingu fyrir eigendurna.

Hæstv. forseti. Vegna skipulagningar og rekstraröryggis getur verið nauðsynlegt að framlengja heimildir til happdrættisrekstrar tímanlega. Það auðveldar þeim sem starfrækja happdrætti að horfa til lengri tíma og er til hagræðingar, svo sem við gerð viðskipta- og rekstraráætlana. Hefur Íslensk getspá meðal annars bent á mikilvægi þess að endurnýja starfsleyfi félagsins tímanlega vegna fjárfestinga við endurnýjun sölu- og upplýsingakerfa.

Þar sem starfsleyfi allra þessara happdrætta og Íslenskrar getspár renna út á sama tíma er það talið til hagræðingar að starfsleyfi þeirra verði framlengd á sama tíma.

Virðulegi forseti. Ég vil taka fram að þetta frumvarp lýtur einvörðungu að þessum þætti mála. Hér eru ekki nein ákvæði um það hvort gera eigi breytingar á umhverfi happdrættismála í landinu. Ég vil hins vegar að það komi fram að sú umræða verður háværari að litið sé til happdrætta á netinu, svo að dæmi sé tekið. Þeir aðilar sem ég hef hér nefnt hafa til dæmis haft þau sjónarmið uppi við ráðuneytið að nauðsynlegt sé að líta til þeirra hluta þessa málaflokks. Ég tek undir það, það þarf að gera það.

Þetta frumvarp kemur ekki í veg fyrir að það sé gert, það er sjálfstætt mál að fara í slíka vinnu. Þegar þeirri vinnu er lokið, sem ég á von á að við munum snúa okkur að bráðlega í ráðuneytinu — það eru dálítið mörg mál sem bíða eftir að koma til þings frá innanríkisráðuneytinu og álag á starfsfólk vegna þess. Ekki hefur því verið hægt að hefja grundvallarvinnu í tengslum við þetta mál, en ég held að óumflýjanlegt sé að það verði gert. Minn vilji stendur til þess. Ég vil bara ítreka að með þessu frumvarpi er á engan hátt verið að þrengja að þeim fyrirætlunum. Mér finnst mikilvægt að það sjónarmið komi fram af minni hálfu til nefndarmanna í allsherjar- og menntamálanefnd sem mun núna fjalla um þetta mál í framhaldinu. Ég veit að nefndin mun fara rækilega yfir það en ég legg áherslu á þennan þátt málsins.

Því vil ég, virðulegur forseti, við lok þessarar framsögu óska eftir því að frumvarpinu verði að lokinni þessari umræðu vísað til hv. allsherjar- og menntamálanefndar til þóknanlegrar meðferðar.