þriðja kynslóð farsíma.
Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um brottfall laga um þriðju kynslóð farsíma, nr. 8/2005. Í frumvarpinu er lagt til að lögin um þriðju kynslóð farsíma falli úr gildi. Þó er kveðið á um það í bráðabirgðaákvæði að tíðniheimildir sem hafa verið gefnar út á grundvelli laganna haldi gildi sínu til lokagildistíma heimildanna svo að enginn vafi leiki á því að réttindi núverandi rétthafa séu tryggð.
Með því að fella úr gildi lög nr. 8/2005 falla úr gildi kvaðir um að tíðnisviðið skuli eingöngu notað fyrir 3G farsímaþjónustu og verði þá hægt að nota tíðnisviðið fyrir nýja tækni. Með þessari ráðstöfun eru umrædd tíðnisvið ekki lengur bundin við 3G farsímaþjónustu heldur verður umrætt tíðnisvið tæknilega hlutlaust. Það felur í sér að tíðnisviðin sem um ræðir verða ekki bundin tiltekinni tækni eða stöðlun.
Þessar breytingar fela í sér að þegar lögin hafa fallið úr gildi munu almennar reglur um tíðniúthlutanir gilda um þetta tíðnisvið en þær reglur er að finna í fjarskiptalögum nr. 81/2003. Með þessum breytingum er unnið við að fylgja eftir hinni sömu tækniþróun sem og alþjóðlegri þróun varðandi nýtingu tæknitíðnisviða og um leið útbúa sem hagkvæmustu aðstæður fyrir atvinnulífið til nýtingar tíðna.
Virðulegi forseti. Ég hef nú gert grein fyrir efnisatriðum frumvarpsins og legg til að frumvarpinu verði að lokinni þessari umræðu vísað til hv. umhverfis- og samgöngunefndar til þóknanlegrar meðferðar.