náttúruvernd.
Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um breytingu á lögum um náttúruvernd, nr. 60/2013, með síðari breytingum. Málið hefur átt sér langan aðdraganda. Það eru sex ár síðan vinna við endurskoðun náttúruverndarlaga hófst og nú sjáum við fyrir endann á þeirri vinnu. Nefndin hefur fjallað um náttúruverndarlög allt kjörtímabilið.
Á þarsíðasta þingi náðist í nefndinni góð sátt um að fresta gildistöku laganna í stað þess að fella þau úr gildi. Á síðasta þingi fundaði nefndin nokkrum sinnum með fulltrúum umhverfis- og auðlindaráðuneytisins um þá endurskoðun á lögunum frá 2013 sem nefndin fól ráðuneytinu að vinna að. Í haust höfum við svo fjallað um afrakstur þeirrar vinnu og aftur komist að góðri sátt um endanlega niðurstöðu. Því ber svo sannarlega að fagna.
Í málinu liggur fyrir mikið af gögnum. Nefndarálitið er ítarlegt og það má einnig benda á nefndarálit nefndarinnar frá því á vorþingi 2014 þegar samkomulag náðist um að fresta gildistöku laganna. Í vinnu nefndarinnar nú hefur mest áhersla verið lögð á þau atriði sem nefndin fól ráðuneytinu að vinna að endurskoðun að. Þau ákvæði voru ákvæði um varúðarreglu, um almannarétt, um akstur utan vega og kortagrunn, ákvæði um sérstaka vernd og um framandi lífverur. Þetta eru þau atriði laganna sem voru hvað mest umdeild og hvað mestur styr stóð um á sínum tíma þegar lögin voru samþykkt. Að það náðist sátt um þau atriði er gríðarlega mikilvægt því að lögin að öðru leyti eru mikil framfaraskref fyrir náttúruvernd á Íslandi sem allir eru sammála um.
Ég ætla í ræðu minni aðeins að víkja stuttlega að þessum atriðum en til frekari rökstuðnings vísa ég í álit nefndarinnar.
Nefndin leggur til breytta útfærslu varúðarreglna sem felst í því að skýra með mun betri hætti hvenær hún á við og hvernig framkvæmd hennar á að vera. Það var ljóst við fyrri umfjöllun um málið að aðilar lögðu mismunandi skilning í regluna og mörgum þótti óljóst hvað hún fæli í sér, hvenær hún ætti við og hvernig hún ætti að virka í framkvæmd. Það er mikið framfaraskref að við skulum í þessum lögum vera að lögfesta varúðarregluna sem er ein af helstu meginreglum umhverfisréttarins, en það er einnig mikilvægt í þessu sambandi að árétta að varúðarreglan á ekki alltaf við þó svo að af framkvæmdin kunni að hljóta náttúruspjöll. Þannig ber að varast að leggja of mikla áherslu á hana því að í kjarna hennar felst að hún á aðeins við í þeim tilvikum sem óvissa ríkir um afleiðingar athafna eða athafnaleysi á náttúru og umhverfi, sé vissa til staðar fyrir neikvæðum umhverfisáhrifum á varúðarreglan ekki við heldur reglan um fyrirbyggjandi aðgerðir sem er önnur meginregla umhverfisréttarins. Íslensk löggjöf sem tekur til umhverfisins byggir að miklu leyti á almennum varúðarsjónarmiðum og er það vel.
Hins vegar, til að skýra gildissvið varúðarreglunnar, þá leggur nefndin til ákveðnar breytingar á frumvarpinu þess efnis að þegar veittar eru undanþágur frá ákvæðum laganna, sem munu þá fela í sér hættu á neikvæðum umhverfisáhrifum eða röskun á friðlýstum minjum eða minjum sem njóta sérstakrar verndar, skuli meta þá óvissu sem kann að vera til staðar á sérstakan hátt í þeim tilgangi að afla betri gagna og varpa betri ljósi á hana svo að sá sem veitir undanþáguna, leyfisveitandi, geti tekið ákvörðun á grundvelli bestu mögulegra upplýsinga og gripið til varnaðaraðgerða ef svo ber undir. Með þessum hætti verður framkvæmd varúðarreglunnar skýr, ljóst er hvenær hún á við og hvernig eigi að beita henni og við látum náttúruna njóta vafans þegar vafi er sannarlega fyrir hendi.
Nefndin ræddi nokkuð ítarlega um reglur laganna um almannarétt. Almannarétturinn á sér djúpar rætur í löggjöf Íslendinga og er okkar afar kær og mikilvægur. Svo að við getum notið einstæðrar náttúru landsins þurfum við að hafa rétt til að fara um hana og þann rétt er mikilvægt að vernda. Það er hins vegar alveg ljóst, og nefndin var öll sammála um það, að við þurfum að nálgast þolmörk náttúrunnar á mörgum stöðum vegna gríðarlegrar fjölgunar ferðamanna hér á landi. Fjöldi þeirra hefur tvöfaldast á síðustu fimm árum og við stöndum nú frammi fyrir nýjum veruleika í þeim efnum. Við verðum þess vegna að grípa til einhvers konar stýringar ef ekki á illa að fara og í þeim efnum verðum við einfaldlega að taka til skoðunar hvort almannarétturinn, sem er okkur svo mikilvægur, eigi að ná yfir aðila sem í atvinnuskyni fénýta náttúrugæði. Þeir aðilar verða einfaldlega að leggja eitthvað af mörkum til verndar náttúrunni sem skapar þær tekjur sem þeir lifa af. Þetta snertir því óhjákvæmilega þá umræðu sem hefur verið síðustu missiri um gjaldtöku af ferðamönnum og hvernig tekjum af þeim verði varið. Sú leið sem nefndin leggur til í þeim efnum er að fela ráðuneytinu að vinna ný ákvæði um stýringu ferðaþjónustunnar með tilliti til almannaréttarins og á grundvelli náttúruverndar. Þannig er komið inn í náttúruverndarlög ákvæði um rétt og skyldur ferðaþjónustuaðila.
Í þeim efnum kemur margt til skoðunar, t.d. að ferðaþjónustuaðilar geri samninga við sveitarfélög, samtök sveitarfélaga eða aðra um leyfi til skipulegra ferða, um stýringu eða takmörkun fjölda þeirra á tilteknum viðkvæmum svæðum o.s.frv. Margt kemur þar til skoðunar og nefndin skilur það eftir nokkuð opið, enda þarf að hafa víðtækt samráð við fjölda aðila og samfélagið í heild svo sátt náist um þessi mál og ferðaþjónusta geti haldið áfram að blómstra. Þessu tengt vil ég þó nefna að nefndin leggur til að Umhverfisstofnun fái skýrari og skilvirkari heimildir til að loka svæðum sem liggja undir skemmdum vegna ágangs og nefndin stígur í þeim efnum nauðsynlegt skref til að vernda náttúruna.
Í kaflanum um utanvegaakstur felast helstu breytingar í nýrri nálgun hvað varðar kortagrunn yfir vegi og slóða í náttúru Íslands sem heimilt verður að keyra. Það sem mesti styrinn hefur sennilega staðið um varðandi utanvegaakstur er einmitt það að ökumaður viti að hann sé að aka utan vega og til að hann viti það þarf að vera til staðar traustur kortagrunnur. Í frumvarpinu er lögð til sú nálgun að sveitarfélögin geri tillögu að vegum og slóðum innan sinna marka og hafi við það samráð við Umhverfisstofnun áður en kortagrunnurinn er birtur. Þannig færum við hluta af ábyrgðinni af náttúruvernd og utanvegaakstri til nærsamfélagsins á hverjum stað, sem er jákvæð breyting.
Ég held að það sé óhætt að segja að álit almennings til utanvegaaksturs hafi breyst á síðustu árum og að fyrir honum þurfi að liggja skýrar undanþágur í lögum. Við þurfum líka að koma þeim skilaboðum með traustum hætti til erlendra ferðamanna sem hingað koma að það sé óheimilt að aka utan vega nema fyrir því séu skýrar undantekningarheimildir í lögum.
Ákvæði frumvarpsins um leyfi fyrir framkvæmdum þegar hætta er á röskun minja á náttúruminjaskrá eða minja sem njóta sérstakrar verndar eru keimlík. Þar er lagt til að horfið verði til baka frá mjög svo beittu orðalagi laganna frá 2013 sem margir, m.a. sveitarfélögin, gerðu athugasemdir við. Niðurstaða nefndarinnar í þeim atriðum er málamiðlun þar sem fetaður er ákveðinn millivegur af því að óhætt er að segja að í þeim efnum hafi borið nokkuð á milli.
Fyrst er að nefna og halda til haga að í útfærslu nefndarinnar á varúðarreglunni felst að hún gildir um ákvarðanir sem eru teknar þegar hætta er á að friðlýstum minjum, minjum á náttúruminjaskrá eða minjum sem njóta sérstakrar verndar verði raskað. Í því felst tvímælalaust sterkari vernd samkvæmt lögum frá 2013.
Í öðru lagi leggur nefndin til í breytingartillögum sínum að almannahagsmuni þurfi til að heimilt verði að fara í framkvæmdir sem kunna að raska minjum á C-hluta náttúruminjaskrár. Með því er nefndin að segja að einfaldir fjárhagslegir hagsmunir dugi ekki til einir og sér. Annaðhvort þurfa þeir að vera gríðarlega miklir eða koma til aðrir mikilvægir samfélagslegir hagsmunir sem hægt væri að telja almannahagsmuni.
Í þriðja lagi leggur nefndin til að þegar hætta er á röskun minja sem njóta sérstakrar nefndar þurfi brýna nauðsyn til. Með þeim breytingum verði til sterkari náttúruvernd en gilt hefur samkvæmt lögunum frá 1999 og jafnframt skilvirkari, sterkari og traustari vernd en samkvæmt lögunum frá 2013.
Þær breytingar sem ég hef farið yfir eru þær sem segja má að skipti mestu máli, án þess að lítið sé gert úr öðrum breytingum. Nefndin leggur til að auki nokkurn fjölda minni breytinga og tæknilegra breytinga sem fjallað er um í nefndarálitinu og vísa ég í það til nánari umfjöllunar.
Að lokum vil ég ítreka að þeirri niðurstöðu sem við höfum hér í höndum ber svo sannarlega að fagna og ég tel það mikil tímamót að við á Alþingi höfum náð þverpólitískri sátt um náttúruverndarlög.
Ég vil svo þakka nefndarmönnum í umhverfis- og samgöngunefnd fyrir mjög gott samstarf og ítarlega og yfirvegaða vinnu. Ég vil þakka riturum nefndarinnar, ég vil þakka núverandi og fyrrverandi umhverfisráðherrum, starfsmönnum ráðuneytisins, starfsmönnum ríkisstofnana og öðrum sem komu fyrir nefndina. Við teljum upp þá fjölmörgu aðila sem hafa skoðun á náttúruverndarlögum. Við tókum þá afstöðu að við skyldum ræða við alla sem hefðu eitthvað að segja eða vildu eitthvað segja eða gætu haft eitthvað um málið að segja. Allir fengu að segja hug sinn þannig að við gætum fengið öll sjónarmið upp á borðið. Ég held að það hafi reynst nefndinni gríðarlega mikilvægt í því að ná þessari góðu sátt.