náttúruvernd.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni og formanni umhverfis- og samgöngunefndar fyrir framsögu hans og ég vil líka þakka honum og öðrum nefndarmönnum fyrir þeirra mikla starf sem þeir hafa unnið í þessu máli. Ég sat í nefndinni þegar ákveðið var að falla frá því að kalla aftur náttúruverndarlögin og fresta fremur gildistökunni og reyna að leggja allt kapp á að ná sáttum þannig að við sæjum fram á framför í málefnum náttúruverndar hér á landi. Mér finnst mjög gott að sjá það starf sem nefndin hefur lagt af mörkum og auðvitað líka hæstv. ráðherra og ráðuneyti umhverfismála til að við séum hér að sjá þessa framför raungerast. Ég vil lýsa ánægju minni með það.
Mig langar hins vegar að spyrja hv. þingmann út í bráðabirgðaákvæði það sem lýtur að almannaréttinum. Ég hef fullan skilning á því að innan þess knappa tímaramma sem umhverfis- og samgöngunefnd hefur verið að vinna hafi ekki gefist tími til að taka á þeim álitamálum sem eru uppi um almannaréttinn, þá sérstaklega eins og hv. þingmaður nefndi hér að auðvitað eru spurningar sem lúta að gjaldtöku, þar sem er mjög mikilvægt að réttaróvissu verði eytt, og þá er ég að vitna til þess að þó að mat Umhverfisstofnunar liggi fyrir, að gjaldtaka einkaaðila við náttúruperlur sé í raun og veru ekki heimil, þá virðist samt sem áður vera þörf á að skýra það betur í lögum, en það er líka mikilvægt að skýrar heimildir komi fram til að takmarka aðgang, til dæmis til að hlífa náttúrunni.
Það sem mig langaði að spyrja hv. þingmann út í er fyrst og fremst það að kveðið er á um að tveir ráðherrar, umhverfismála og ferðamála, fái þetta verkefni og ljúki því fyrir haust 2017, mig langar því að spyrja hvort hv. umhverfis- og samgöngunefnd muni eiga einhverja aðkomu að þeirri vinnu og hvort nefndin hyggist taka þau mál upp því að mig grunar (Forseti hringir.) að þau mál verði ofarlega á baugi í opinberri umræðu á næstu missirum.