145. löggjafarþing — 31. fundur,  11. nóv. 2015.

náttúruvernd.

140. mál
[17:31]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Ég hafði boðað breytingartillögu við frumvarpið og var búinn að láta dreifa henni hér. Svo það sé sagt hér þá sá ég mér leik á borði að koma að frumvarpi sem ég var búinn að semja og búinn að kynna fyrir þingheimi um að þeir sem mundu henda rusli á almannafæri þyrftu að greiða sekt upp á 100 þús. kr. Ég skal viðurkenna að ég var fyrst og fremst að hugsa um hálendið okkar og nágrenni við þjóðvegina. Hugmyndin var að koma því máli inn sem breytingartillögu við það mál sem við ræðum hér.

Ég tilkynnti hv. nefnd þá fyrirætlun mína og var að vonast til þess að það mál fengi þá einhverja umræðu í hv. umhverfisnefnd. Hins vegar er mér orðið ljóst eftir samtal við forustumenn nefndarinnar að það mál sem við ræðum nú er á mjög viðkvæmum stað. Búið er að leggja mikið upp úr því að ná sátt á milli aðila og mér skilst að framlagning breytingartillögu minnar muni ekki hjálpa við það verk og gæti jafnvel truflað það. Það er ekki ætlunin. Ætlunin er ekki að koma á neinum ófriði um þetta viðkvæma mál sem ég vonast til að menn séu búnir að ná góðri niðurstöðu um sem við getum öll verið sátt við. Ég skal þó viðurkenna að ég hef ekki skoðað það í hörgul.

Þetta mál, breytingartillagan og frumvarpið, svo ég noti tækifærið og fari aðeins yfir það, gengur út á að við fylgjum eftir fordæmi þeirra landa þar sem sett hafa verið mjög há sektarákvæði við því að menn hendi rusli á víðavangi með það að markmiði að koma í veg fyrir slíkt. Það hefur gengið vel, eftir því sem ég best veit, á öllum þeim stöðum þar sem það er gert. Frægasta dæmið er örugglega Singapore þar sem eru miklu meira en sektargreiðslur við því að henda rusli, þar liggja fangelsisrefsingar við því ef menn henda tyggjó á gangstétt oftar en einu sinni, en ég var nú meira að hugsa um fordæmi eins og í Bandaríkjunum. Eitt frægasta verkefnið þar er í Texas. Virðulegi forseti. Ég veit að það er ekki æskilegt að menn tali önnur tungumál en íslensku hér en ég held að þetta skiljist ekki nema ég noti frummálið. Ég bið því virðulegan forseta að sýna því skilning þótt ég segi þetta á ensku. Yfirskrift átaksins er: Don't mess with Texas. Það felur í sér mjög háar sektir við því að henda rusli, ætli það hafi ekki verið svona 200 þús. ísl. kr. síðast þegar ég reiknaði það út. En fleira var gert. Þar var allra handa kynning til að breyta viðhorfi almennings þannig að fólk mundi ekki henda rusli á víðavangi.

Við skulum ekki gleyma því að það kostar mjög mikið að henda rusli á víðavangi. Sumt er beinn kostnaður því að það þarf að fá fólk til að þrífa og það er mikill kostnaður við það, en óbeini kostnaðurinn er miklu hærri. Við erum með ósnortin víðerni eins og til dæmis hálendið og það er gríðarlegur skaði að því að henda einni áldollu þar, sjónmengunin af því er mjög mikil þó að við gefum okkur að kostnaðurinn við að taka upp dósina sé enginn. Það hefur enginn áhuga á því að ferðast um land þar sem er sóðaskapur. Okkar helstu útflutningstekjur eru af ferðaþjónustunni og þó að það væri ekki nema af þeirri ástæðu einni verðum við að setja þessi mál í forgang, þ.e. að fólk fari vel með landið okkar og hendi ekki rusli á víðavangi.

Ég get nefnt fleiri svæði. Ég er búinn að keyra mikið um Bandaríkin og síðast þegar ég keyrði um Kalíforníu tók ég eftir því að hvergi á þeim leiðum sem ég ók, á mjög fallegum leiðum, sást rusl, ekki neins staðar, en ég sá reglulega skilti þar sem sagt var að maður þyrftir að borga mjög háar sektir ef maður vogaði sér að gera eitthvað slíkt. Menn hafa spurt: Hvað með eftirlitið? Ég hef hvergi séð eftirlit þar sem þetta er gert, ekki frekar en við sjáum eftirlitsmenn á heimilum þó að heimilisofbeldi sé bannað. Við ætlum ekki að aflétta banninu á heimilisofbeldi þó að við getum ekki verið með eftirlit inni á heimilunum. En það hefur aldrei verið auðveldara að upplýsa um svona hluti. Frægt er nýlegt dæmi frá Grindavík þar sem menn hentu hlutum á víðavangi og af því varð mikill skaði. Þeir áttu að borga sekt, reyndar mjög lága ef marka má fjölmiðla.

En þótt ég sé tilbúinn og hvergi hættur að berjast fyrir þessu máli vil ég ekki að það verði til þess að skaða stóra málið sem hér er undir. Ég er algerlega meðvitaður um það og hef fullan skilning á því að menn þurfi að skoða málið út frá ýmsum hliðum þannig að það verði sem best úr garði gert. Ég hef ekki áhuga á því að setja hv. þingmenn í þá stöðu að þurfa að fella þetta mál vegna þess að þeir viti ekki alveg hvað það muni hafa í för með sér í framkvæmd og vilji skoða það betur. Ég hef rætt þessi mál við hv. formann umhverfisnefndar, hv. þm. Höskuld Þórhallsson, sem mun auðvitað tala fyrir sig, en ég skil hann svo að hann sé mjög jákvæður gagnvart málinu en ekki akkúrat á þessum tímapunkti af þeim ástæðum sem ég nefndi.

Ég er jafnframt mjög ánægður eftir að hafa heyrt frá hæstv. umhverfisráðherra, Sigrúnu Magnúsdóttur. Hún hefur einnig mikinn áhuga á þessu máli og sýnir því mikinn skilning og hefur kannski fleiri tæki en aðrir til að skoða þetta mál og koma því í framkvæmd. Ég vonast til þess að þó að ég ætli að draga tillögu mína til baka af þeim ástæðum sem ég nefndi hér (Gripið fram í: Til baka?) — já, það er það sem ég ætla að gera og af þeim ástæðum sem ég nefndi — þá treysti ég því að þeir sem hafa mest um það mál að segja, og þá vísa ég sérstaklega til hæstv. ráðherra, setji það í farveg þannig að við getum tekið afstöðu þess í þinginu sem allra fyrst, því að mér finnst þetta vera algert forgangsmál. Því fyrr sem við gefum þessi skilaboð, því fyrr sem við breytum lögunum þannig að við greiðum háar sektir ef við hendum rusli á víðavangi, því betra. Reyndar tel ég þetta vera algert forgangsmál og hefði ekki dregið það til baka nema af þeim ástæðum sem ég nefndi, þ.e. að hér er stórt mál undir og ekki er tækifæri til þess núna að skoða tillöguna á milli umræðna, sem ég vonaðist annars til að hægt væri að gera.

Ég vildi bara tilkynna hv. þingheimi og virðulegum forseta það.