145. löggjafarþing — 31. fundur,  11. nóv. 2015.

náttúruvernd.

140. mál
[17:44]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég hlýði alltaf forseta. Ég ætlaði ekki að koma í andsvar aftur af því að ég hafði engu við þetta að bæta. Ég er bara hjartanlega sammála hæstv. ráðherra og held að það sé algjör samhljómur milli okkar hvað þetta varðar. Ef samstaða er um málið er bara eitt að gera, það er að koma málinu í framkvæmd. Það er næsta verkefni. Ég treysti hæstv. ráðherra til að ganga hratt í það verk.