145. löggjafarþing — 32. fundur,  12. nóv. 2015.

frumvörp um húsnæðismál.

[10:50]
Horfa

félags- og húsnæðismálaráðherra (Eygló Harðardóttir) (F):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Steingrími Sigfússyni fyrir fyrirspurnina. Eins og hv. þingmaður kannast örugglega við skuldbatt ríkisstjórnin sig í tengslum við kjarasamninga til þess að fara í ákveðnar aðgerðir í húsnæðismálunum. Við höfum unnið samkvæmt þeirri aðgerðaáætlun. Inn í þingið eru þegar komnar tillögur um fjármögnun á þeim aðgerðum í fjárlagafrumvarpinu og eru núna í meðferð fjárlaganefndar. Tillögur sem snúa að bandorminum eru líka komnar inn í efnahags- og viðskiptanefnd. Síðan höfum við, ráðherrar sem höfum komið nálægt málaflokknum, unnið að þeim frumvörpum og útfærslum á því hvernig rétt sé að úthluta þessum fjármunum og öðru sem tengist yfirlýsingunni.

Annar hluti af yfirlýsingunni er mjög víðtækt samráð við aðila vinnumarkaðarins og sveitarfélögin. Það hefur einfaldlega tekið sinn tíma. Þetta samstarf hefur gengið með ágætum, það hefur ekkert breyst. Það kom fram hjá mér þegar við ræddum síðast málaþurrð í þinginu að ég tæki það að sjálfsögðu til mín sem ég ætti og að við ynnum hörðum höndum að því að koma frumvörpunum inn í þingið. Það hefur ekkert breyst varðandi þingmálaskrána. Við stefnum enn á ný að því að koma þessum málum inn. Eins og ég hef nálgast þetta verkefni er lykilatriði að ná sátt um frumvörpin og það að við tökum eins mikið tillit til þeirra athugasemda í samráðinu og hægt er. Málið er bara í farvegi og ég vænti þess að þessi mál komi fljótlega fram á þinginu.