145. löggjafarþing — 32. fundur,  12. nóv. 2015.

landbúnaðarháskólarnir.

[11:06]
Horfa

Lárus Ástmar Hannesson (Vg):

Forseti. Ég þakka hæstv. menntamálaráðherra svörin. Ég lít svo á að þau séu nokkuð skýr, þ.e. að innan skamms megi vænta niðurstöðu í þessu máli og við munum þá skoða það þegar þar að kemur og fara yfir þá stöðu sem þarna er uppi og hvaða möguleikar eru í stöðunni.