RÚV-skýrslan.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. málshefjanda fyrir að taka þessa umræðu hér upp og hæstv. ráðherra fyrir hans svör og þeim öðrum sem hafa komið inn í umræðuna.
Ég vil byrja á því að segja að umræðan hefur kannski vaxið svolítið síðustu daga og eftir að skýrsla RÚV kom út, sem var hér til umræðu áðan, og fyrirspurnin frá hv. þm. Svandísi Svavarsdóttur hafa menn farið í miklar skotgrafir á báða bóga, bæði þeir sem hallast að því að það verði að skera meira niður hjá RÚV og aðrir.
Það er margt í þessari skýrslu sem er jákvætt. Það er alltaf jákvætt að við skoðum hvað megi betur fara í rekstri þar sem verið er að nota opinbert fjármagn. Það er alltaf jákvætt, alveg sama hvort um er að ræða Ríkisútvarpið eða annað vegna þess að það er rekið fyrir almannafé. Í þessari skýrslu eru jákvæðir punktar þar sem bent er á þætti hvað það snertir.
Það er líka svo að þegar við tölum um stöðu og hlutverk RÚV þá vil ég taka undir með þeim sem hér hafa komið. Mín persónulega skoðun, og skoðun Framsóknarflokksins til langs tíma, hefur verið sú að það sé mikilvægt að hafa hér ríkisútvarp sem öflugan fjölmiðil hvað varðar menningu. Það er líka mikilvægt að hafa hlutlausan fjölmiðil sem fjallar um fréttir, bæði hér á höfuðborgarsvæðinu, landsbyggðinni og málefni líðandi stundar.
Það er ágætlega farið yfir þetta af stjórnarmanni Framsóknarflokksins í blaðagrein í dag þar sem hann segir meðal annars:
„RÚV er í þágu okkar allra. Framsóknarflokkurinn hefur ætíð staðið vörð um þessa menningarstofnun sem hefur fylgt okkur lengi og meginþorri þjóðarinnar vill hafa við hlið sér.“
Það er mikilvægt að hafa öflugan, sjálfstæðan og hlutlægan fjölmiðil og það er okkar hlutverk hér að tryggja þessi atriði á hverjum tíma. Það er líka svo að það er fullkomlega eðlilegt að þingmenn, bæði hér og (Forseti hringir.) úti í samfélaginu, séu að velta fyrir sér hvernig farið er með opinbert fé hjá Ríkisútvarpinu og öllum öðrum stofnunum. Það hefur verið gert og það eru jákvæðir punktar í skýrslunni sem benda á það og það eigum við að taka með okkur.